Tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar 2016-2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Næstu tónleikar í tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar eru fyrirhugaðir þriðjudagskvöldið 25. apríl kl. 20 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Þá stíga á stokk þau Þórarinn Sigurbergsson á gítar, Björn Davíð Kristjánsson á þverflautu og Sólveig Anna Jónsdóttir leikur með þeim á píanó.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
20. fundur
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styðja við tónleikaröð kennara á vorönn 2017 með sams konar hætti og gert var á haustönn 2016. Stefnt er að tvennum tónleika kennara á vorönn og verið er að skoða dagsetningar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
18. fundur
Farið yfir hvernig til tókst á fyrstu tónleikunum í október og tónleika framundan í nóvember.
Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar fóru fram þriðjudaginn þriðjudagskvöldið 11. október sl. í sal Tónlistarskólans við Kirkjulund þegar boðið var upp á fjölbreyttan jazz. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og góð aðsókn.
Næstu tónleikar á haustönn verða haldnir 22. nóvember nk. Tónleikaröðin er styrkt af menningar- og safnanefnd.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
17. fundur
Greint var frá fyrirhugðum tónleikum sem verða á haustönn í tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar með styrk frá menningar- og safnanefnd.
Jazztónleikar með þeim Sunnu Gunnlaugsdóttur, Þorgrími Jónssyni, Ómari Guðjónssyni og Jóni Óskari Jónssyni verða haldnir í september eða október á þriðjudagskvöldi kl. 20, nánari dagsetning kemur fljótlega. Þriðjudagskvöldið 22. nóvember kl. 20 verða haldnir strengja- og píanótónleikar með rússneskri og a-evrópskri tónlist. Flytjendur þar eru Guðrún Dalía Salómonsdóttir, Renata Ivan, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Kristín Björg Ragnarsdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir og Helga Björg Ágústsdóttir.
Bæjarráð Garðabæjar
05
18. (1735). fundur
Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um að veita kennurum í Tónlistarskóla Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 350.000 vegna tónleikaraðar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
16. fundur
Erindi Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur, f.h. kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar, móttekið í maí 2016, um styrk vegna tónleikaraðar tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja tónleikaröðina að hausti 2016 um upphæð 350 000 kr. og tekur jákvætt í að leggja til sömu fjárhæð næstu vorönn við gerð fjárhagsáætlunar 2017.