18. fundur
18. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.10.2016
Kl. 08:15 - 09:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1605502
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017
Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnir vinnu og forsendur við gerð fjárhagsáætlunar 2017.
Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, mætti á fundinn og fór yfir forsendur og helstu tölur í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð í bæjarstjórn Garðabæjar 3. nóvember nk.
Umræður voru um ramma fyrir menningarmálin.
Málsnúmer 1610286
02
Beiðni um aukningu fjármagns vegna fjárhagsáætlunar 2017
Erindi forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar dags. 12. október 2016 um aukningu fjármagns til bóka- og tímaritakaupa, 2ja ára verkefnis, launaliðar, húsnæðis og húsbúnaðar fyrir Bókasafn Garðabæjar.
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 12. október 2016, um aukningu fjármagns til bóka- og tímaritakaupa, 2ja ára verkefnis, launaliðar, húsnæðis og húsbúnaðar fyrir Bókasafn Garðabæjar, var tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd fagnar öflugu og góðu starfi Bókasafns Garðabæjar í þágu bæjarbúa og vísar erindinu til fjárhagsáætlunar 2017.
Bókasafn Álftaness var stofnað 9. nóvember 1956 og verður því 60 ára á þessu ári. Haldið verður upp á það með afmæliskaffi og upplestri 9. nóvember nk.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610285
03
Styrkumsókn vegna bókmenntakvölds á Bókasafni Garðabæjar
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 11. október 2016, um bókmenntakvöld á Bókasafni Garðabæjar 24. nóvember nk.
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 11. október 2016, um styrk vegna bókmenntakvölds á Bókasafni Garðabæjar var tekið fyrir. Ekki er gert ráð fyrir viðburði sem þessum í fjárhagsáætlun 2016.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita Bókasafni Garðabæjar styrk að upphæð 150.000 kr. vegna bókmenntakvölds á Bókasafni Garðabæjar 24. nóvember nk.
Nefndin telur æskilegt að í framtíðinni verði horft til þess að viðburðir sem þessir í Bókasafninu séu hafðir með í fjárhagsáætlun safnsins hverju sinni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605116
04
Tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar 2016-2017
Farið yfir hvernig til tókst á fyrstu tónleikunum í október og tónleika framundan í nóvember.
Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar fóru fram þriðjudaginn þriðjudagskvöldið 11. október sl. í sal Tónlistarskólans við Kirkjulund þegar boðið var upp á fjölbreyttan jazz. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og góð aðsókn.
Næstu tónleikar á haustönn verða haldnir 22. nóvember nk. Tónleikaröðin er styrkt af menningar- og safnanefnd.
Málsnúmer 1610050
05
Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju í desember 2016
Bréf Ármanns Helgasonar, f.h. Camerarctica, dags. 3. október 2016, um styrk vegna árlegra tónleika í Garðakirkju 21. desember 2016.
Bréf Ármanns Helgasonar, f.h. Camerarctica, dags. 3. október 2016, um styrk vegna árlegra tónleika undir yfirskriftinni ,,Mozart við kertaljós“ í Garðakirkju 21. desember nk. var tekið fyrir.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita kammerhópnum Camerarctica styrk að upphæð 175.000 vegna tónleikanna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610288
06
Gospeltónleikar á afmælisári
Fyrirhugaðir gospeltónleikar gospelkóra Jóns Vídalíns ásamt gestum í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar og 10 ára afmæli kórsins verða haldnir fimmtudaginn 10. nóvember nk. í Vídalínskirkju.
Í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar og 10 ára afmæli gospelkórs Jóns Vídalíns á árinu verða haldnir gospeltónleikar í Vídalínskirkju fimmtudaginn 10. nóvember nk. með stuðningi og í samstarfi við Garðabæ.
Eldri og yngri (16-20 ára) gospelkórar Jóns Vídalíns verða í aðalhlutverki þetta kvöld en gestasöngvarar verða þau Stefán Hilmarsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Páll Rósinkranz. Aðgangur að tónleikunum verður ókeypis.
Málsnúmer 1608541
07
Tónlistarveisla í skammdeginu 2016
Farið yfir undirbúning vegna Tónlistarveislu í skammdeginu sem verður haldin á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 17. nóvember nk.
Fyrirhugaðir tónleikar undir yfirskriftinni ,,Tónlistarveisla í skammdeginu“ verða haldnir á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 17. nóvember nk. Tónlistarflytjendur þetta kvöld verða þau Jógvan Hansen, Sigríður Beinteinsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir ásamt píanóleikara.
Myndlistarfélagið Gróska verður með samsýningu í Gróskusalnum sama kvöld og fyrirtæki/verslanir á torginu verða hvött til að taka þátt með kvöldopnun.
Málsnúmer 1608548
08
Vinnuaðstaða í Króki veturinn 2016-2017
Samþykkt var að eftirtaldir listamenn fái afnot af vinnuaðstöðunni í Króki frá nóvember 2016- janúar 2017: Ilmur Kristjánsdóttir, María Reyndal og Hannes Páll Pálsson vegna handritaskrifa fyrir sjónvarpsseríu.
Laus tímabil frá febrúar fram í maí 2017 verða auglýst aftur.
Málsnúmer 1604151
09
Aðventuopnun í Króki
Stefnt er að því að hafa opið hús í Króki fyrsta sunnudag í aðventu.
Sérstök barnadagskrá var í Króki 11. september sl. en þá var boðið upp á leiðsögn fyrir börn og listasmiðju. Góð þátttaka var í dagskránni.
Stefnt er að því að hafa sérstaka aðventuopnun í Króki sunnudaginn 27. nóvember nk. Þá verður opið hús milli 13 og 17 með leiðsögn á staðnum og ratleikjum fyrir börn sem hafa verið sérútbúnir fyrir Krók.
Málsnúmer 1610280
10
Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2017
Greint frá undirbúningi við vetrarhátíð og ósk Höfuðborgarstofu um að fá fulltrúa frá Garðabæ til að sitja í stjórn Vetrarhátíðar.
Undirbúningur fyrir Vetrarhátíð, sem verður haldin dagana 2.-5. febrúar 2017, er hafinn. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin ár tekið þátt í tveimur stærstu viðburðunum á Vetrarhátíð, Safnanótt og Sundlauganótt.
Höfuðborgarstofa vill efla enn frekar samstarfið við nágrannasveitarfélögin í tengslum við Vetrarhátíð og hefur í ár óskað eftir að fulltrúi frá Garðabæ sitji í stjórn Vetrarhátíðar. Stjórnin hefur verið skipuð starfsmönnum höfuðborgarstofu ásamt fulltrúum sundlauga og safna í Reykjavík og síðustu ár hafa tveir fulltrúar komið frá öðrum sveitarfélögum.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að Hulda Hauksdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi verði fulltrúi Garðabæjar í stjórn Vetrarhátíðar.
Málsnúmer 1610289
11
Óperuverkefni/dagar í Garðabæ
Bréf frá Guju Sandholt, Rannveigu Káradóttur og Erlu Björg Káradóttur, f.h. Peru óperukollektíf, mótt. 26. október 2016, um hugmynd að sönghátíð í Garðabæ á árinu 2017 þar sem óperuformið og klassískur söngur verða í forgrunni, lagt fram.
Menningar- og safnanefnd telur erindið áhugavert og vísar því til áframhaldandi umræðu innan nefndarinnar í tengslum við fjárhagsáætlun 2017.
Málsnúmer 1605103
12
Húsnæði til að starfrækja vinnustofu fyrir leiklist
Áframhaldandi umræða um málið.