Beint í efni

Vinnuaðstaða í Króki veturinn 2016-2017

Málsnúmer 1608548

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

18. fundur

Samþykkt var að eftirtaldir listamenn fái afnot af vinnuaðstöðunni í Króki frá nóvember 2016- janúar 2017: Ilmur Kristjánsdóttir, María Reyndal og Hannes Páll Pálsson vegna handritaskrifa fyrir sjónvarpsseríu.
Laus tímabil frá febrúar fram í maí 2017 verða auglýst aftur.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

17. fundur

Auglýst var nýverið eftir umsóknum um vinnuaðstöðu listamanna/fræðimanna í Króki veturinn 2016-2017. Í boði er að sækja um vinnuaðstöðuna 1-3 mánuði í senn. Umsóknir verða kynntar nefndarmönnum á milli funda og formleg afgreiðsla tekin fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

Í sumar var Krókur opinn almenningi á sunnudögum frá júní - ágúst. Sunnudagurinn 3. júlí var auglýstur sérstaklega en þá var Elín Vilmundardóttir sem ólst upp í Króki á staðnum og sagði frá lífinu í Króki. Hátt í 150 manns mættu í Krók þennan sunnudag og við þetta tilefni afhenti Elín Vilmundardóttir safninu í Króki orf og ljá föður síns, ásamt fellingapípu sem notuð var til að fella net í sjóinn.

Framundan er sérstök sunnudagsopnun í Króki sunnudaginn 11. september nk. en þá verður boðið upp á leiðsögn fyrir börn og listasmiðju í framhaldi af leiðsögninni.