Afgreiðsla menningar- og safnanefnda um að veita Bókasafni Garðabæjar styrk vegna bókmenntakvölds
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (1759). fundur
Lögð fram afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Bókasafni Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna bókmenntakvölds sem fyrirhugað er 24. nóvember 2016.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
18. fundur
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 11. október 2016, um bókmenntakvöld á Bókasafni Garðabæjar 24. nóvember nk.
Bréf forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar, dags. 11. október 2016, um styrk vegna bókmenntakvölds á Bókasafni Garðabæjar var tekið fyrir. Ekki er gert ráð fyrir viðburði sem þessum í fjárhagsáætlun 2016.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita Bókasafni Garðabæjar styrk að upphæð 150.000 kr. vegna bókmenntakvölds á Bókasafni Garðabæjar 24. nóvember nk.
Nefndin telur æskilegt að í framtíðinni verði horft til þess að viðburðir sem þessir í Bókasafninu séu hafðir með í fjárhagsáætlun safnsins hverju sinni.