42. (1759). fundur
42. (1759). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
01.11.2016
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varabæjarfulltrúi
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1610261
01
Bréf Sorpu bs. um rekstraráætlun fyrir árin 2017-2021, dags. 17.10.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606484
02
Minnisblað umhverfisstjóra og skipulagsstjóra um gerð uppbyggingaráætlunar fyrir Garðahverfi í tengslum við verkefnið - Verndarsvæði í byggð, dags. 26.10.16.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita samninga við ráðgjafa um gerð uppbyggingaráætlunar fyrir Garðahverfi í tengslum við verkefnið „Verndarsvæði í byggð“ sem styrkt er af húsafriðunarsjóði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610290
03
Bréf Serbnesku menningarmiðstöðvarinnar á Íslandi um afnot af skólahúsnæði, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1608510
04
Beiðni AJ, EBH og IH um skiptingu einbýlishússins við Hörgatún 1 í tvær eignir, dags. 25.08.16.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til meðferðar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1610305
05
Kauptilboð Endurskoðunar og ráðgjafar ehf. í húsnæði við Garðatorg 7. (sýningarsalur), dags. 27.10.16.
Málsnúmer 1606315
06
Bréf Þjóðskrár Íslands um fasteignamat 2017, dags. 26.10.16.
Málsnúmer 1610309
07
Bréf Kvenfélags og Lionsklúbbs Álftaness um þorrablót 2017 í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi, dags. 26.10.16.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Kvenfélags og og Lionsklúbbs Álftaness í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi laugardaginn 21. janúar 2017.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610276
08
Bréf UMF-Stjörnunnar um þorrablót 2017 í Mýrinni, dags. 25.10.16.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni föstudaginn 20. janúar 2017.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610285
09
Afgreiðsla menningar- og safnanefnda um að veita Bókasafni Garðabæjar styrk vegna bókmenntakvölds
Lögð fram afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Bókasafni Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 150.000 vegna bókmenntakvölds sem fyrirhugað er 24. nóvember 2016.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610050
10
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Camerarctica styrk vegna tónleika í Garðakirkju.
Lögð fram afgreiðsla menningar- og safnanefndar um að veita Camerarctica styrk að fjárhæð kr. 175.000 vegna tónleika í Garðakirkju 21. desember 2016 undir yfirskriftinni „Mozart við kertaljós“.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
11
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017-2020.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017 og árin 2018 - 2020, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017 eru:
Heildartekjur 13.234.406 þkr.
Heildargjöld 12.168.783 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.040.929 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) (729.554) þkr.
Rekstrarniðurstaða 346.069 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.