Beint í efni

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins um verndarsvæði í byggð - Garðahverfi, dags. 26.10.17.

Málsnúmer 1606484

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

43. (1809). fundur

Lagt fram bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem fallist er á tillögu Garðabæjar um að Garðahverfi á Álftanesi verði gert að verndarsvæði í byggð.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

40. fundur

Ráðherra hefur staðfest að Garðahverfi hafi hlotið sérstakt verndarsvæði í byggð innan sveitarfélagsins skv. ákvæðum laganna

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

11. (813). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum að leggja til við mennta- og menningarmálaráðherra að byggðin í Garðahverfi verði gerð að verndarsvæði samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Tillögunni fylgir greinargerð þar sem útmörkum svæðisins er lýst ásamt því sem fjallað er um varðveislugildi byggðarinnar og skilmála um vernd og uppbyggingu innan svæðisins. Tillagan hefur verið auglýst samkvæmt 4. mgr. 5. gr. ofangreindra laga auk þess sem haldinn var íbúafundur á Garðaholti. Ein athugasemd barst og hefur henni verið vísað til skipulagsnefndar í athugsemdarfresti tillögu að nýju aðalskipulagi.

María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1788). fundur

Tillaga um að gera Garðahverfi að verndarsvæði var auglýst eins og áskilið er í lögum um verndarsvæði byggð nr. 87/2015. Athugasemdarfrestur var til 6. júní 2017 og barst ein athugasemd og hefur henni verið vísað til umfjöllunar í tengslum við gerð nýs aðalskipulags.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu um að Garðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

7. (809). fundur

Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar fylgdi úr hlaði tillögu til ráðherra um að Garðahverfi verði verndarsvæði í bygg.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við mennta- og menningarmálaráðherra að byggðin í Garðahverfi verði gerð að verndarsvæði samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Tillögunni fylgir greinargerð þar sem útmörkum svæðisins er lýst ásamt því sem fjallað er um varðveislugildi byggðarinnar og skilmála um vernd og uppbyggingu innan svæðisins. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti til að íbúum og öðrum sem hagsmuna eiga að gæta gefist kostur á að gera athugasemdir eða koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Jafnframt skal halda íbúafund á Garðaholti. Frestur til að gera athugasemdir skal vera a.m.k. sex vikur.“

María Grétarsdóttir situr hjá.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

06

32. fundur

Unnið hefur verið að því í samstarfi við Alta ráðgjöf að Garðahverfi verði tilnefnt sem "Verndarsvæði í byggð". Tillaga þess efnis verður tekin fyrir í bæjarstjórn 6. apríl nk.
Umhverfisstjóri hefur verið að kynna málið fyrir íbúum með heimsóknum í Garðahverfi.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

07

12. (1778). fundur

Lögð fram og kynnt tillaga og greinargerð um að Garðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð en sérstakur styrkur fékkst frá Minjastofnun til undirbúnings málsins.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

29. fundur

Garðabær hefur fengið styrk úr Húsafriðunarsjóði til að undirbúa tillögu að verndarsvæði í byggð fyrir Garðahverfi. Það er forsætisráðherra sem tekur ákvörðun um verndun byggðar á grundvelli laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016, að fenginni tillögu sveitarstjórnar og Minjastofnunnar.
Bæjarráð hefur samþykkt að undirrita samstarfssamning við Minjastofnun.
Alta ráðgjöf hefur verið fengin í ráðgjöf við verkefnið sem gert er ráð fyrir að verði í vinnslu í lok þessa árs og því næsta.

Nefndinni kynnt staða verkefnisins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

09

47 (1764). fundur

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

10

42. (1759). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita samninga við ráðgjafa um gerð uppbyggingaráætlunar fyrir Garðahverfi í tengslum við verkefnið „Verndarsvæði í byggð“ sem styrkt er af húsafriðunarsjóði.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

11

26. fundur

Úthlutun styrks úr húsfriðunarsjóði 2016. Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi, Álftanesi.

Umhverfisnefnd fagnar styrk að upphæð kr. 5.175.000.- til verkefnisins.

Bæjarráð Garðabæjar

12

36. (1753). fundur

Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands þar sem greint er frá úthlutun styrks úr húsfriðunarsjóði að fjárhæð kr. 5.175.000 til að vinna að því verkefni að gera Garðahverfi á Álftanesi að verndarsvæði í byggð.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

13

25. fundur

Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna sérstakrar úthlutunar úr húsafriðunarsjóði til að undirbúa tillögu að verndaráætlun í byggð.
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.

Umhverfisnefnd leggur til að sótt verði um styrk vegna Garðahverfis.

Fylgiskjöl