36. (1753). fundur
36. (1753). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
20.09.2016
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1608551
01
Málefni Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri. Gerðu þeir grein fyrir rekstrarafkomu samkvæmt árshlutauppgjöri, fóru yfir þróun á umfangi starfseminnar undanfarin ár, fjölluðu um þróun einstakra kostnaðarþátta og í því sambandi var vikið sérstaklega að þróun launakostnaðar og áhrifum starfsmats.
Fjallað var um vinnu við gerð brunavarnaráætlunar sem kynnt hefur verið í stjórn SHS en þegar áætlunin liggur fyrir mun hún verða send sveitarstjórnum til meðferðar og afgreiðslu.
Málsnúmer 1605335
02
Suðurhraun 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Afgreiðslu frestað þar sem ekki hefur verið gengið frá samningum um lóðarréttindi á grundvelli nýs deiliskipulags.
Málsnúmer 1607235
03
Kinnargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bergi Péturssyni, kt. 050790-2669 leyfi fyrir stækkun á kjallararými hússins við Kinnargötu 3.
Málsnúmer 1603350
04
Holtsvegur 1 ( Lynggata 1 - 3 ) - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG-verktökum, kt. 581198-2569, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 20 íbúðum við Holtsveg 1. (Lynggötu 1-3).
Málsnúmer 1607249
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Holtsbúð 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Holtsbúð 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1608482
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Hliðsnes 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi á lóðinni Hliðsnesi 2 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1607180
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Hegranes 28.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Hegranesi 28 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1605408
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir Mávanes 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingareit hússins við Mávanes 7 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1608436
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna umsóknar um byggingarleyfi við Mávanes 21.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Mávanesi 21 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1603167
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar um frávik frá deiliskipulagi Grunda og Ása við útgáfu á byggingarleyfi raðhúsa við Unnargrund.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að klæðning fari út fyrir lóðarmörk raðhúsanna við Unnargrund 1-5 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1305618
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar ð auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Málsnúmer 1405177
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Ásbúðar og Holtsbúðar.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að nýju deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1507165
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1604158
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1606266
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1 - 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 50 í 55.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1609213
16
Bréf Urriðaholts varðandi leyfi til framkvæmda við landmótun, dags. 15.09.16.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að hafnar verði jarðvegsframkvæmdir og landmótun á lóðinni Urriðaholtsstræti 10-12 og á deiliskipulagssvæði 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og vísar í því sambandi til ákvæðis 3. mgr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 þar sem fram kemur heimild til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarleyfi hafi verið gefið út.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1405273
17
Bréf Jóns Ragnars Daðasonar um niðurfellingu fasteignagjalda af friðlýstri fasteign við Breiðabólstaði, ódags.
Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2016 að fjárhæð kr. 93.883.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606428
18
Bréf mannauðsstjóra varðandi afgreiðslu á umsókn um styrk til háskólanáms.
Bæjarráð samþykkir að veita Helgu Linnet, leiðbeinanda á Leikskólanum Holtakoti styrk í formi 10% afsláttar af vinnuskyldu vegna náms skólaárið 2016-2017.
Málsnúmer 1607161
19
Bréf Íbúðalánasjóðs um framkvæmd laga um almennar íbúðir, dags. 12.09.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar í tengslum við vinnu við undirbúning greiningar á þörf fyrir leiguíbúðir og gerð húsnæðisáætlunar sbr. bókun á fundi bæjarráðs 30. ágúst sl.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609048
20
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um framkvæmd á utanatkvæðagreiðslu við Alþingiskosningar 2016, dags. 09.09.16.
Málsnúmer 1510283
21
Niðurstöður í hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður dómnefndar gerði grein fyrir niðurstöðum dómnefndar í samkeppni sem haldin var í samstarfi með Hönnunarmiðstöð Íslands um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Vinningstillagan kom frá Teiknistofunni Tröð og var unnin af Sigríði Magnúsdóttur, arkitekt FAÍ, Hans Olav Andersen, arkitekt FAÍ, Magnúsi Andersen, ljósmyndara og Nínu Solveigu Andersen.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við vinningshafa varðandi gerð samninga um útfærslu, kynningu o.fl.
Málsnúmer 1609244
22
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um reglur vegna framlaga til stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda, dags. 15.09.16.
Málsnúmer 1608499
23
Afgreiðsla leikskólanefndar á reglum um forgang að leikskólum í Garðabæ.
Bæjarráð samþykir að vísa reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606484
24
Bréf Minjastofnunar Íslands um úthlutun styrks, dags. 14.09.16.
Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands þar sem greint er frá úthlutun styrks úr húsfriðunarsjóði að fjárhæð kr. 5.175.000 til að vinna að því verkefni að gera Garðahverfi á Álftanesi að verndarsvæði í byggð.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603406
25
Opnun tilboða í snjómokstur á gangstéttum og göngustígum.
Eftirfarandi tilboð í vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Garðabæ eru lögð fram.
Garðlist ehf. kr. 19.356.000
Hreinsitækni ehf.kr. 35.779.200
Kostnaðaráætlun kr. 31.500.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609205
26