Beint í efni

Holtsbúð 10 Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1607249

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús við Holtsbúð 10, samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

14. (797). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Holtsbúð 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

38. (1755). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús við Holtsbúð 10, samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu sem stóð til 28.september.
Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt þar sem að undangenginni grenndarkynningu er lokið án athugasemda.

Bæjarráð Garðabæjar

05

36. (1753). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Holtsbúð 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

12. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu. Tillaga að breytingu deiliskipulags var grenndarkynnt án athugsemda árið 2008. Þar sem deiliskipulagið telst ekki formlega gilt ber að afgreiða umsókn um byggingarleyfi sem umsókn um framkvæmdir í byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa umsókninni til grenndarkynningar sbr.1mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef að samþykki eigenda húsa sem grenndarkynning nær til liggur fyrir sbr. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

07

33. (1750). fundur

Bæjarráð vísar umsókninni til meðferðar skipulagsnefndar samkvæmt 44. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 þar sem um er að ræða byggingarframkvæmdir í þegar byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.