14. fundur
14. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
29.09.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Tillaga að Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 lögð fram að loknu stefnumótunarferli ásamt umhverfismatsskýrslu.
Umhverfismatsskýrslu vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 1608251
02
Súlunes 10 - Viðbygging neðan jarðar
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir niðurgrafinni viðbyggingu sunnan íbúðarhússins að hluta til utan byggingarreits. Viðbyggingin er 200 m2 að grunnfleti. Húsið er 375 m2 að grunnfleti og yrði því eftir stækkun 575 m2. Lóðin er 1.800 m2 að stærð og yrði nýtingarhlutfall lóðar því 0,32 en samkvæmt samþykktu deiliskipulagi er hámarks nýtingarhlutfall 0,45.
Akstursniðurkeyrslur eru samkvæmt grein 4.6. óheimilar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við niðurgrafið rými en hafnar tillögu að akstursniðurkeyrslu að rýminu. Skipulagsnefnd vísar tillögu að niðurgröfnu rými til grenndarkynningar.
Málsnúmer 1605449
03
Þernunes 1 Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Ein athugasemd hefur borist. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1608205
04
Þernunes 7 - Dýpkun á bílskúr
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu sem stóð til 27.september.
Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt þar sem að undangenginni grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Málsnúmer 1607249
05
Holtsbúð 10 Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu sem stóð til 28.september.
Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt þar sem að undangenginni grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Málsnúmer 1609380
06
Suðurhraun 1 og 3 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.