Þernunes 7 - Dýpkun á bílskúr
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (797). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús að Þernunesi 7 samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
02
38. (1755). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús að Þernunesi 7 samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu sem stóð til 27.september.
Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt þar sem að undangenginni grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
12. (795). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 7.
Bæjarráð Garðabæjar
05
32. (1749). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 7.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
11. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á bílageymslu sem gerir ráð fyrir því að gólf verði lækkað um 1 m og að bílastæði framan við bílageymslu breytist í ramp frá lóðarmörkum. Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Arnarness sem fellt hefur verið úr gildi eru akstursniðurkeyrslur (skábrautir) óheimilaðar. Þar sem að hæðarmunur er innan við einn metri frá lóðarmörkum að bílageymsludyrum og dæmi eru um svipaðar útfærslur í Arnarnesi telur nefndin að um óverulega breytingu frá samþykktu deiliskipulagi sé að ræða. Skipulagsnefnd vísar byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar samkvæmt 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.