32. (1749). fundur
32. (1749). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
23.08.2016
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Þernunes 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 1.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Þernunes 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 7.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Súlunes 18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fella niður grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi samkvæmt heimild í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga við núverandi hús að Súlunesi 18 og heimila útgáfu leyfisins.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Hegranes 32.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi húsi að Hegranesi 32 en engar athugasemdir bárust í grenndarkynningu samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Mávanes 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á núverandi húsi að Mávanesi 7 en engar athugasemdir bárust í grenndarkynningu samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Hagaflöt 18.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Hagaflöt 18 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 22.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 22 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 1 og Lynggötu 1-3.
Lögð fram.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis í Urriðaholti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að heimilaðar verði allt að 36 smáíbúðir á lóðinni við Urriðaholtsstræti 10-12.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi og og nýju deiliskipulagi fyrir Hafnarfjarðarveg vegna gatnamóta við Vífilsstaðaveg.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við gerð tillögu að breytingu á aðalskipulagi og gerðs nýs deiliskipulags fyrir Hafnarfjarðarveg í tengslum við endurbætur á gatnamótum við Vífilsstaðaveg.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Kópavogs um breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024.
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar þar sem fram kemur að nefndin telji ekki ástæðu til að gera athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna fjölgunar á íbúðum í Smáranum vestan Reykjanesbrautar.
13
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um námslán og námsstyrki, 794. mál. dags. 18.08.16.
Lagt fram.
14
Bréf yfirfasteignamatsnefndar um úrskurð vegna kæru á álagningu fasteignskatts fasteignarinnar við Smiðsbúð 12, dags. 15.08.16.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu í úrskurði yfirfasteignamatsnefndar þar sem staðfest er ákvörðun Garðabæjar um álagningu fasteignaskatts á fasteignina að Smiðsbúð 12.
Fylgiskjöl
15
Rekstur Ísafoldar - staða mála.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að í undirbúningi er að leggja fyrir bæjarráð viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna rekstrar Ísafoldar en í fjárhagsáætlun var einungis gert ráð fyrir starfsemi í þrjá mánuði árinu 2016. Samningar um yfirtöku ríkisins á rekstrinum hafa ekki gengið eftir þrátt fyrir að ráðuneytið hafa lýst því yfir í ársbyrjun að ríkið væri tilbúið til að taka yfir reksturinn.
Bæjarstjóri sagði frá því að unnið hafi verið að því að hagræða í rekstrinum og að leitað hafi verið til ráðgjafafyrirtækisins Nolta ehf. um úttekt á rekstrinum og gerð tillagna um frekari hagræðingu en fyrirtækið vann skýrslu fyrir Félag fyrirtækja í velferðarþjónustum um rekstur hjúkrunarheimila.