Beint í efni

Stekkjarflöt 22,dsk breyting

Málsnúmer 1605301

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

1. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að breytingum á íbúðarhúsinu að Stekkjarflöt 22. Bygging fer 50-100 cm út fyrir byggingareit.
Skipulagsstjóri samþykkir með vísan í 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga og 2.gr.e. í viðauka II samþykktar nr.20 að heimila að við veitingu byggingarleyfis sé vikið sé frá kröfu 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik sé frá deiliskipulagi Flata er að ræða. Samþykki nágranna að Stekkjarflöt 20 fyrir útfærslunni liggur fyrir og það lagt fram.

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (1749). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 22 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í grenndarkynningu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Breyting skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (792). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. (792). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Stekkjarflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. sömu greinar, eigendum Stekkjarflatar 20, 23 og 25 og Ungmennafélaginu Stjörnunni.

Bæjarráð Garðabæjar

06

20. (1737). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Stekkjarflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. sömu greinar, eigendum Stekkjarflatar 20, 23 og 25 og Ungmennafélaginu Stjörnunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn um stækkun hússins að Stekkjarflöt 22. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að húsabaki. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Stekkjarflatar 20, 23 og 25 og Ungmennafélaginu Stjörnunni.