20. (1737). fundur
20. (1737). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
31.05.2016
Kl. 08:00 - 08:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1604021
01
Starfsemi og verkefni heilbrigðiseftirlits. (Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri kemur á fundinn)
Á fund bæjarráðs mætti Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins og gerði grein fyrir starfseminni eftirlitsins.
Málsnúmer 1507165
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Málsnúmer 1604276
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna Lynggötu 2-4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar, samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, óverulegri breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna stækkunar á byggingarreit lóðarinnar við Lynggötu 2-4. Grenndarkynna skal lóðarhöfum Dyngjugötu 1-3,5,7,9,11,13 og jafnframt skal tillagan send til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.
Málsnúmer 1508006
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markaflöt 4.
Bæjarráð samþykkir að tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 1601109
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi og vegna framkvæmda á lóðinni við Blikanes 14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Blikanes 14 enda verði gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóðinni meðfram lóðarmörkum við götu. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd varðandi bílastæði á lóðinni og er tekið tillit til hennar við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1605301
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Stekkjarflöt 22. Grenndarkynna skal tillöguna samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. sömu greinar, eigendum Stekkjarflatar 20, 23 og 25 og Ungmennafélaginu Stjörnunni.
Málsnúmer 1605249
07
Beiðni Hestamannafélagsins Spretts um styrk við gróðurátak fyrir Landsmót hestamanna 2022, dags. 17.05.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605147
08
Opnun tilboða vegna framkvæmda við færslu gatnamóta Garðatorgs og Vífilsstaðavegar.
Eftirfarandi tilboð bárust.
Jarðaval sf. kr. 28.919.400
Vörðuberg ehf. kr. 30.811.500
Geipnir verktakar ehf. kr. 26.208.500
Bjössi ehf. kr. 28.800.000
Gott verk ehf. kr. 32.808.800
Sumargarðar ehf. kr. 42.401.200
Steinmótun ehf. kr. 29.226.000
Rökkvi verktakar ehf. kr. 29.552.500
Kostnaðaráætlun kr. 25.868.300
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605392
09
Opnun tilboða varðandi vélaleigu og vinnu fyrir þjónustumiðstöð Garðabæjar 2016-2018.
Eftirfarandi tilboð bárust.
B1 ? Fjarðargrjót ehf. kr. 3.701.360
Dráttarbílar ? vélaleiga ehf. kr. 1.524.444
Garðlist ehf. kr. 2.207.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605436
10
Drög að samkomulagi Wapp og Garðabæjar um skráningu og birtingu leiðarlýsinga
Lagt fram minnisblað um gerð leiðsagnarapps fyrir snjallsíma þar sem í boði eru hreyfileiðir og söguleiðir innan Garðabæjar. Heildarkostnaður við verkefnið er um 1,3 mkr.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Wapp Walking app ehf. á grundvelli fyrirliggjandi minnisblaðs og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605437
11
Drög að samningi við Alþjóðaskólann um starfsemi leik- og grunnskóla.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Alþjóðaskólann á Íslandi ehf. um starfsemi leik- og grunnskóla.