Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markaflöt 4.

Málsnúmer 1508006

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

20. (1737). fundur

Bæjarráð samþykkir að tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata vegna áforma um stækkun einbýlishússins. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir voru gerðar. Breytingin skoðast því samþykkt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (788). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við einbýlishúsið að Markarflöt 4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

8. (1725). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við einbýlishúsið að Markarflöt 4, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort heimilt verði að byggja við bifreiðargeymslu einbýlishússins að Markarflöt 4 fram á bílastæði að götu. Svar er neikvætt þar sem að samkvæmt deiliskipulagi Flata skal hámarkslengd brunagafls við lóðarmörk ekki vera lengri en 7,5 metrar.