4. fundur
4. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.02.2016
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Aðalskipulagsráðgjafar frá Teiknistofu arkitekta, Landmótun og Eflu mættu á fund skipulagsnefndar. Teknir voru fyrir valkostir varðandi legu stíga og skilgreiningu þeirra.
Niðurstöðum varðandi einstaka valkosti vísað til aðalskipulagsráðgjafa til fullvinnslu tillögu sem unnt verði að vísa til forkynningar.
Gísli Geir Jónsson og Baldur Ó. Svavarsson lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Við fögnum þeirri áherslu í tillögum aðalskipulagsráðgjafa að stígur umhverfis Arnarnes verði nú skilgreindur sem uppbyggður göngustígur (útivistarstígur). Það er áfangasigur".
02
Holtsvegur 2 - 6 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn þar sem að bygging fer lítillega út fyrir byggingareit. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfi skv tillögu þar sem að hún metur breytinguna sem frávik frá deiliskipulag sbr. 3.mgr.43.gr. Skipulagslagslaga.
03
Lyngás 1, breyting á dsk Ása og Grunda
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Lyngás 1 að lokinni kynningu sem stóð frá 9.desember 2015 til 20.janúar 2016. 4 athugasemdabréf hafa borist undirrituð af 63 íbúum sem mótmæla hækkun húsanna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
04
Garðatorg 2, fyrirspurn um stækkun.
Lögð fram fyrirspurn um breytingar á húsinu að Garðatorgi 2 sem er í byggingu. Spurt er hvort heimilt verði að setja stiga-og lyftuhús ofan á bygginguna. Svar: Ekki verður heimiluð hækkun á hámarkshæð hússins. Spurt er hvort heimilað verði að byggja 20 fermetra um fram leyfilegt byggingarmagn vegna viðbyggingar út á þaksvalir á 7.hæð. Svar: Ekki verður heimiluð aukning byggingarmagns. Spurt er hvort hægt sé að sameina tvær íbúðir á 8.hæð í eina. Svar: Það kallar ekki á deiliskipulagsbreytingu en mælt er með því að þeirri íbúð fylgi 2 bílastæði í kjallara hússins þar sem líklegt má telja að í framtíðinni verði farið fram á íbúðinni verði skipt upp í tvær.
05
Markarflöt 4, dsk breyting
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.
06
Blikanes 14, dsk br
Lögð fram fyrirspurn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
07
Eyvindarholt 5 - Umsókn um skiptingu á lóð
Lögð fram tillaga að breyting á eignamörkum í Eyvindarholti á Álftanesi. 750 m2 spilda úr Eyvindarholti 5 verður að Eyvindarholti 4. Skipulagsnefnd samþykkir skiptinguna með vísan í 1.mgr. 48.gr. Skiplagslaga.
08
Langalína 18/Nýhöfn 2 -Umsókn um byggingarleyfi
Tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Sjálands lögð fram að lokinni grenndarkynningu engar athugsemdir bárust og skoðast hún því samþykkt.
09
Búðarflöt 3 Umsókn um byggingarleyfi
Byggingarleyfisumsókn lögð fram að lokinni grenndarkynningu engar athugsemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
10
Hegranes 32 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness lögð fram að lokinni grenndarkynningu engar athugsemdir bárust og skoðast hún því samþykkt.
12
Hönnunarreglur fyrir stoppistöðvar Strætó
Lagt fram. Reglunum vísað til skoðunar hjá deiliskipulagshöfundum Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.