Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Langalínu 18/Nýhöfn 2

Málsnúmer 1409107

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

8. (1725). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Löngulínu 18/Nýhöfn 2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

4. fundur

Tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Sjálands lögð fram að lokinni grenndarkynningu engar athugsemdir bárust og skoðast hún því samþykkt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (784). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Löngulínu 18, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Nýhöfn 2.

Bæjarráð Garðabæjar

04

49. (1717). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Löngulínu 18, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Nýhöfn 2.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

18. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að lokað verði fyrir umferð í suðurenda götu austan Löngulínu 18 og að gert verði ráð fyrir bílastæðum framan við bílageymslur.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands sbr 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum að Nýhöfn 2.

Fylgiskjöl