49. (1717). fundur
49. (1717). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
22.12.2015
Kl. 08:00 - 08:35
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við Búðarflöt 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi, að undangenginni grenndarkynningu, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna byggingar bifreiðargeymslu við Búðarflöt 1, en með því skilyrði að breidd hennar verði ekki meiri en 8,6 m.
Fylgiskjöl
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Búðarflöt 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu á byggingarleyfi, að undangenginni grenndarkynningu, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við íbúðarhúsið við Búðarflöt 3.
Fylgiskjöl
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Löngulínu 18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Löngulínu 18, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Nýhöfn 2.
Fylgiskjöl
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Hegranes 32.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreits lóðarinnar við Hegranes 32, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna fyrirspurnar um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 7.
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar vegna fyrirspurnar um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 7.
Fylgiskjöl
06
Bréf Samkeppniseftirlitsins um markaðsrannsókn á eldsneytismarkaðnum, frummatsskýrsla, dags. 04.12.15.
Lagt fram bréf Samkeppniseftirlitsins þar sem kallað er eftir sjónarmiðum og athugasemdum við skýrslu um ofangreint málefni.
Fylgiskjöl
07
Bréf Þjóðskjalasafns Íslands, ábending um skjalastjórn og skjalavörslu, dags. 11.12.15.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta vinna samantekt á stöðu skjalavörslu og skjalastjórnunar hjá Garðabæ með vísan til ákvæða laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014.
Fylgiskjöl
08
Bréf Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla o.fl. varðandi aðstöðu á Bjarnastöðum, dags. 20.11.15.
09
Bréf og undirskriftarlisti íbúa á Hleinum um lokun Herjólfsbrautar við Álftanesveg, dags. 05.12.15.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum íbúa á Hleinum þar sem upplýst var að fyrirhugað er að gatnamót Herjólfsbraut við Gamla Álftanesveg verði áfram opin til vestur að nýja Álftanesveginum.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar í tengslum við fyrirhugaða umfjöllun um breytingu á deiliskipulagi Prýðahverfis og Gamla Álftanesvegar.
Fylgiskjöl
10
Bréf Mannvirkjastofnunar um gildistíma brunavarnaáætlunar, dags. 14.12.15.
11
Bréf Umhverfisstofnunar um kortlagningu hávaða og hávaðamælingar, dags. 11.12.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari úrvinnslu tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
12
Kvörtun íbúa við Lækjarás vegna hljóðvistar frá Hafnarfjarðarvegi
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir erindi íbúa við Lækjarás vegna hávaða frá umferð á Hafnarfjarðarvegi. Í erindinu kemur fram fyrirspurn um hvort Garðabær veiti styrki til að bæta hljóðvist íbúðarhúsa við umferðargötur.
Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
13
Tilnefning á fulltrúum Hönnunarmiðstöðvar Íslands í dómnefnd vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd samkvæmt tilnefningu Hönnunarmiðstöðvar Íslands, vegna hugmyndasamkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ.
Guðni Valberg arkitekt AÍ, Trípólí arkitektar.
Hildigunnur Gunnarsdóttir grafískur hönnuður FÍT.
Fylgiskjöl
14
Tilnefning á fulltrúum Arkitektafélags Íslands í dómnefnd vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila, samkvæmt tilnefningu Arkitektafélagi Íslands,
í dómnefnd vegna vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Helgi Mar Hallgrímsson, arkitekt hjá Arkþing.
Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt hjá borgarskipulagi Reykjavíkur.
Fylgiskjöl
15
Drög að samningi Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Bæjarráð vísar drögum að samningi til frekari úrvinnslu bæjarstjóra.