Beint í efni

Rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar

Málsnúmer 1510027

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (818). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (1805). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram tillaga að rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar. Tillagan er unnin af ráðgjafateymi sem samanstendur af arkitektastofunni Batteríinu, landlagsarkitektstofunni Landslagi og verkfræðistofunni Mannviti. Byggir tillagan á vinnistillögu í samkeppni um rammaskipulag svæðisins sem fram fór á síðasta ári.
Svæðið sem rammaskipulagið nær til er 22,1 ha og skiptist í Lyngássvæði L (14,8 ha) og Hafnarfjarðarvegarsvæði H (7,3 ha).
Á svæðinu öllu gerir rammaskipulagið ráð fyrir 950-1400 íbúðareiningum (L=500-750, H = 450-650). Einnig er gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði sem nemur 22.000-38.000 m2. (L= 2.000-5.000 H= 20.000-33.000)
Lyngássvæðið skiptist í 6 reiti: L1,L2,L3,L4,L5 og L6. Reitur L6 er austan Hraunsholtslækjar við Ægisgrund.
Hafnarfjarðarvegarsvæði skiptist í 3 reiti: H1, H2 og H3. Reitur H3 er vestan Hraunholtslækjar við Lækjarfit.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem rammaskipulag svæðisins og skal það verða grundvöllur deiliskipulagsgerðar sem unnin verður í áföngum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að rammaskipulagi Lyngássvæðis og svæðis við Hafnarfjarðarveg sem unnin hefur verið af höfunum vinningstillögu samkeppninnar sem fram fór á síðasta ári.
Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

8. fundur

Lögð fram tillaga að rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar sem byggir á vinningstillögu samkeppninnar sem fram fór á síðasta ári. Sigurður Einarsson og Jóhanna Helgadóttir hjá Batteríinu, Gísli Rafn Guðmundsson hjá Landslagi og Ólöf Kristjánsdóttir hjá Mannviti gerðu grein fyrir tillögunni. Ennfremur gerði Ólöf grein fyrir skoðun á útfærslu Hafnarfjarðarvegar í stokki og frumathugun kostnaðar. Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn aðalskipulagsráðgjafa um það hvort að rammaskipulagstillagan kalli á breytingar á aðalskipulagtillögu þeirri sem auglýst hefur verið og þeirri breytingartillögu aðalskipulags vegna borgarlínu sem hefur verið í forkynningu.

Bæjarráð Garðabæjar

06

26. (1743). fundur

Lögð fram og kynnt eftirfarandi niðurstaða dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

1. sæti kr. 2.500.000 Höfundar: Batteríið, Landslag og Mannvit
2. sæti kr. 1.500.000 Höfundar: Arkitektastofan JPL, Viaplan og Alta
3. - 4. sæti kr. 500.000 Höfundar: Felixx, Jvantspijker og VSÓ - ráðgjöf
3. - 4. sæti kr. 500.000 Höfundar: Ask- arkitektar

Bæjarráð vísar niðurstöðum dómnefndar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir niðurstöðum dómnefndar í hugmyndasamkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar. Tillögur verða til sýnis fyrir almenning á Garðatorgi til 8.júlí.
Niðurstöður dómnefndar vera sendar bæjarstjórn til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.

Bæjarráð Garðabæjar

08

5. (1722). fundur

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu dómnefndar um útgáfu keppnislýsingar vegna samkeppni fyrir Lyngássvæðið og Hafnarfjarðarveg með áorðnum breytingum sem kynntar voru á fundinum.

Bæjarráð samþykkir að tillagan verði send fulltrúum í skipulagsnefnd.

Bæjarráð Garðabæjar

09

49. (1717). fundur

Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila, samkvæmt tilnefningu Arkitektafélagi Íslands,
í dómnefnd vegna vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

Helgi Mar Hallgrímsson, arkitekt hjá Arkþing.
Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt hjá borgarskipulagi Reykjavíkur.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

10

49. (1717). fundur

Bæjarráð vísar drögum að samningi til frekari úrvinnslu bæjarstjóra.

Bæjarráð Garðabæjar

11

45. (1713). fundur

Bæjarráð samþykkir tilnefningu Brynjars Darra Baldurssonar, Lækjargötu 28, Hafnafirði í dómnefnd vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

17. (781). fundur

Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir að fresta tilnefningu á fulltrúa minnihlutans þar til á fundi bæjarráðs nk. þriðjudag.

Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, fulltrúi í skipulagsnefnd
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs

Bæjarstjórn samþykkir tillögu um að fulltrúi minnihlutans verði skipaður af bæjarráði samkvæmt tilnefningu.

Formaður dómnefndar er Áslaug Hulda Jónsdóttir.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

17. (781). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

14

44. (1712). fundur

Lögð er fram tillaga um skipan fimm manna dómnefndar vegna samkeppni um rammaskipulag fyrir Lyngássvæðið og skal nefndin skipuð þremur fulltrúum frá Garðabæ og tveimur frá Arkitektafélagi Íslands.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar tilnefningu á fulltrúum Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.