26. (1743). fundur
26. (1743). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.07.2016
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1503196
02
Áætlun um kostnað og framkvæmdir við endurbætur sundlaugar við Ásgarð.
Bæjarverkfræðingur kynnti teikningar og áætlanir varðandi framkvæmdir við sundlaug en gert er ráð fyrir að þær verði boðnar út í haust.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1510027
03
Niðurstöður dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Lögð fram og kynnt eftirfarandi niðurstaða dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
1. sæti kr. 2.500.000 Höfundar: Batteríið, Landslag og Mannvit
2. sæti kr. 1.500.000 Höfundar: Arkitektastofan JPL, Viaplan og Alta
3. - 4. sæti kr. 500.000 Höfundar: Felixx, Jvantspijker og VSÓ - ráðgjöf
3. - 4. sæti kr. 500.000 Höfundar: Ask- arkitektar
Bæjarráð vísar niðurstöðum dómnefndar til frekari umfjöllunar og úrvinnslu skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606443
04
Tilkynning frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga um nafnabreytingu, dags. 27.06.16.
Lögð fram.
Málsnúmer 1606449
05
Bréf innanríkisráðherra varðandi tilraunaverkefni um rafrænar íbúakosningar, dags. 24.06.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til mannréttinda- og forvarnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606479
06
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um laun fulltrúa í sveitarstjórnum, dags. 28.06.16.
Málsnúmer 1606484
07
Bréf Minjastofnunar varðandi umsóknir um styrki úr húsfriðunarsjóði, dags. 30.06.16.
Málsnúmer 1606491
08
Bréf Ferðamálastofu um samstarf vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðamanna, dags. 29.06.16.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Huldu Hauksdóttur, upplýsinga- og menningarfulltrúa til að vera tengiliður Garðabæjar vegna verkefnisins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606492
09
Bréf Brynju - Hússjóðs Öryrkjabandalagsins um umsókn um stofnframlag, dags. 28.06.16.
Lagt fram og afgreiðslu frestað.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka saman minnisblað um hlutverk sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum nýrra laga á sviði húsnæðismála og leggja fram drög að greiningu á þörf fyrir uppbyggingu á leiguíbúðum í bæjarfélaginu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606494
10
Tilkynning Orkusjóðs um styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603319
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga,vegna stækkunar byggingarreits og æfingavalla.
Málsnúmer 1603320
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir nýjum æfingavelli, strandblakvöllum og að húsið Garður standi áfram.
Málsnúmer 1606329
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahraun.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna breytingu á vegtengingum o.fl.
Málsnúmer 1606283
14
Umsögn skipulagsnefndar um erindi Strætó bs. vegna leiðar 23 Ásgarður-Álftanes-Ásgarður.
Lögð fram umsögn skipulagsnefndar þar sem fram kemur að fyrirhugað sé að loka gatnamótum Gamla Álftanesvegar við Herjólfsbraut og jafnframt bent á að skoða möguleika á nýrri stoppistöð við Álftanesveg.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi Strætó bs. og upplýsa um stöðu mála.
Málsnúmer 1605408
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Mávanes 7.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við Mávanes 7.
Málsnúmer 1605026
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Frjóakur 9.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfa byggingarleyfis samkvæmt. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar kjallara hússins við Frjóakur 9 en um óverulegt frávik er að ræða fá deiliskipulagi.
Málsnúmer 1606244
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Hagaflöt 18.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata er varðar lóðina nr. 18 við Hagaflöt.
Málsnúmer 1512329
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Hagaflöt 22.
Bæjarráð samþykkir að tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar nr. 22 við Hagaflöt verði send Skipulagsstofnun og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt 3. ml. 2. mgr. 43. skipulagsaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1511336
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Kauptúns.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Kauptúns er varðar lóðina nr. 4 Kauptún en tillagan gerir ráð fyrir að ákvæði um hraunhól falli niður en í þess stað verði gert ráð fyrir bílastæðum til hleðslu rafbíla.
Málsnúmer 1606457
20
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 35.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts er varðar útlitsbreytingar húss á lóðinni nr. 35 við Holtsveg.
Málsnúmer 1606458
21
Afgreiðsla skipulagsnefndar um frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 37 og 39.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfa byggingarleyfis samkvæmt. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna frágangs þaks en um óverulegt frávik er að ræða fá deiliskipulagi.
Málsnúmer 1602395
22
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða um 2 eða úr 3 í 5.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1601425
23
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 19-25.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 19-25 við Kinnargötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða úr 4 í 5 eða um 1.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1602367
24
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 45-47 við Holtsveg verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða úr 9 í 10 eða um 1.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1510158
25
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Brekkugötu 1-3.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Brekkugötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða úr 22 í 25 eða um 3.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1602391
26
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Dyngjugötu 1-3.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Dyngjugötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða úr 16 í 18 eða um 2.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1603023
27
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Víkurgötu 4 og 13 og Keldugötu 2.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna nr. 4 og 13 við Víkurgötu og nr. 2 við Keldugötu. verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1601099
28
Afgreiðsla skipulagsnefndar um umsókn um leyfi fyrir byggingu raðhúsa á lóðum við Bessastaðatjörn.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafinn verði undirbúningur að gerð deiliskipulags fyrir byggðina við Bessastaðatjörn.