Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1743). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Í tillögunni er gert ráð fyrir fjölgun íbúða um 2 eða úr 3 í 5.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 743.738 á íbúð m.v. BVT 642,4 stig í janúar 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu fjölgi úr 3 í 5 og að gert verði ráð fyrir bílastæðum inni á lóðinni.Tillagan var í kynningu frá 2.maí til 13.júní. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr.41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.
Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það.
Gjaldið er greitt við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. (789). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 3 í 5. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
9. (1726). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 3 í 5 Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu fjölgi úr 3 í 5 og að gert verði ráð fyrir bílastæðum inni á lóðinni.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.