6. (789). fundur
6. (789). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
17.03.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. mars 2016 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/3 ´16
Steinþór Einarsson ræddi 28. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og spurði um stöðu málsins.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 21. tl., afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun og óskaði eftir nánari upplýsingum almennt um afgreiðslu á styrkbeiðnum.
Gunnar Einarsson, ræddi 28. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og 21. tl., afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun og svaraði fyrirspurnum.
Fundargerðin sem er 32 tl. er samþykkt samhljóða.
1.10 - 1601425 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða við Kinnargötu 19-25.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 19-25. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 4 í 5. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
1.11 - 1603026 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á húsnúmeri Hellugötu 31.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að númer lóðarinnar við Hellugötu 31 breytist og verði Hellugata 15.
Fylgiskjöl
1.13 - 1603027 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 9-13.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 9-13 þar sem farið er fram á fjölgun minni íbúða um þrjár án þess að fylgi bílastæði í kjallara.
Fylgiskjöl
1.14 - 1602391 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dyngjugötu 1-3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Dyngjugötu 1-3. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgar úr 16 í 18. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
1.15 - 1510158 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áf. norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Brekkugötu 1-3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Brekkugötu 1-3. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgar úr 22 í 25. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
1.7 - 1507165 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi forkynningu deiliskipulags 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna nýtt deiliskipulag 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts fyrir íbúum og hagsmunaðilum með auglýsingu og á almenum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að lokinni kynningu skal tillagan lögð fram til meðferðar í sveitarstjórn.
Fylgiskjöl
1.8 - 1603023 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Víkurgötu og Keldugötu
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Víkurgötu 4 og 13 og Keldugötu 2.
Fylgiskjöl
1.9 - 1602395 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða við Mosagötu 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Mosagötu 2. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 3 í 5. Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/3 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., stöðu mála varðandi samninga við ríkið um yfirtöku á starfsemi Ísafoldar og 16. tl., minnisblað VSÓ um ástand og framtíð gervigrasvalla í Garðabæ. Steinþór óskaði eftir nánari upplýsingum um stöðu mála á viðræðum við Stjörnuna um uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélagsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfis.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 7. tl., bréf Samtaka sveitarfélagsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfis, 12. tl., stöðu mála varðandi samninga við ríkið um yfirtöku á starfsemi Ísafoldar og 16. tl., minnisblað VSÓ um ástand og framtíð gervigrasvalla í Garðabæ. Bæjarstjóri sagði nánar frá hugmyndum um uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarðs og viðræðum við forsvarsmenn Stjörnunnar um málið.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju og ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
María Grétarsdóttir, ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi uppbyggingu íþróttasvæðis við Ásgarð
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.
2.3 - 1602367 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 45-47. Í tillögunni felst að íbúðum fjölgi úr 9 í 10 Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 742.581 á íbúð m.v. BVT 641,4 stig í mars 2016 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
2.7 - 1603133 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfisins, dags. 08.03.16.
Bæjarstjórn samþykkir aðild að samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um átak í viðhaldi og endurnýjun gatnakerfis, enda verði aðild að verkefninu samþykkt af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum.
Fylgiskjöl
2.8 - 1603135 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samstarfsamning um verkefnið Fluglestin, dags. 08.03.16.
Bæjarstjórn samþykkir aðild að samstarfsamningi um verkefnið „Fluglestin“, enda verði samningurinn samþykktur af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum
Fylgiskjöl
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 10/3 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 5. tl., umsókn um afbrigði frá reglum um leikskólavist.
Viktoría Jensdóttir, ræddi sama mál og gerði grein fyrir umfjöllun um málið í leikskólanefnd.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 2/3 ´16.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl. niðurstöður Rannsóknar og greiningar
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 26/2 ´16
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl. þriðjudagsklassík og 6. tl. Jasshátíð. Gunnar Valur vísaði til bókunar nefndarinnar um að viðburðir þessir hefðu fest sig í sessi og því leggi nefndin áherslu á að gera fasta samninga til einhvers tíma við stjórnendur þeirra.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar og sagði frá samþykkt afmælisnefndar um viðburði af því tilefni.
Jóna Sæmundsdóttir, vísaði til styrkja til menningarmála sbr. 5. tl., fundargerðarinnar og notaði tækifærið til að færa Kvennakór Garðabæjar þakkir fyrir frábæra skemmtun á góugleði kórsins.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 22/10 ´15.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 10/3 ´16.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð umhverfisnefndar Garðabæjar frá 9/3 ´16.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., hreinsunarátak 2016, 4. tl., hænsnahald í Garðabæ og 6. tl., fræðslu og sögugöngur 2016.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 4. tl., hænsnahald í Garðabæ og 2. tl., hreinsunarátak 2006. Áslaug Hulda sagði frá hugmyndum um að tengja hreinsunarátakið afmælisárinu með því að hvetja fólk til þátttöku við að gera bæinn snyrtilegan og að fólki noti tækifærið til að koma saman í götugrilli.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 1/3 ´16.
Fundargerðin er lögð fram.
14
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 19/2 ´16.
Fundargerðin er lögð fram.
15
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 26/2 og 29/2 ´16.
Gunnar Valur ræddi 3. tl. 238 f. og 1. tl., 239 f. breytingu á leiðakerfi.
Steinþór Einarsson, ræddi breytingu á leiðakerfi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi breytingu á leiðakerfi
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju um breytingu á leiðakerfi.
Sigurður Guðmundsson, ræddi breytingu á leiðakerfi.
Fundargerðirnar lagðar fram
16
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands.
Gunnar Valur Gíslason, fjallaði um tillögu að stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands og sagði frá umfjöllun um stefnuna í menningar- og safnanefnd þar sem fram kom jákvæð afstaða til tillögunar.
Gunnar Valur lýsti stuðningi við stefnumótunina og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja hana.
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi tillögu að stefnumótun Hönnunarsafns Íslands.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls og ræddi tillögu að stefnumótun Hönnunarsafns Íslands.
Steinþór Einarsson, tók til máls og ræddi tillögu að stefnumótun Hönnunarsafns Íslands.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands samþykkt með 10 atkvæðum. María Grétarsdóttir situr hjá.
17
Reglur um launalaus leyfi starfsmanna Garðabæjar.
Reglur um launalaus leyfi starfsmanna Garðabæjar samþykktar samhljóða.
18
Ársreikningur Garðabæjar 2015. (fyrri umræða)
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2015. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum.
Á fundinum er lögð fram sundurliðun ársreiknings og skýrsla endurskoðenda.
Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi framkominn ársreikning Garðabæjar 2015.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2015 til síðari umræðu í bæjarstjórn.