Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 26/2 ´16
Málsnúmer 1602041F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (789). fundur
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl. þriðjudagsklassík og 6. tl. Jasshátíð. Gunnar Valur vísaði til bókunar nefndarinnar um að viðburðir þessir hefðu fest sig í sessi og því leggi nefndin áherslu á að gera fasta samninga til einhvers tíma við stjórnendur þeirra.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar og sagði frá samþykkt afmælisnefndar um viðburði af því tilefni.
Jóna Sæmundsdóttir, vísaði til styrkja til menningarmála sbr. 5. tl., fundargerðarinnar og notaði tækifærið til að færa Kvennakór Garðabæjar þakkir fyrir frábæra skemmtun á góugleði kórsins.
Fundargerðin er lögð fram.