Beint í efni

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands.

Málsnúmer 1505136

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (789). fundur

Gunnar Valur Gíslason, fjallaði um tillögu að stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands og sagði frá umfjöllun um stefnuna í menningar- og safnanefnd þar sem fram kom jákvæð afstaða til tillögunar.

Gunnar Valur lýsti stuðningi við stefnumótunina og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja hana.

María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi tillögu að stefnumótun Hönnunarsafns Íslands.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls og ræddi tillögu að stefnumótun Hönnunarsafns Íslands.

Steinþór Einarsson, tók til máls og ræddi tillögu að stefnumótun Hönnunarsafns Íslands.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands samþykkt með 10 atkvæðum. María Grétarsdóttir situr hjá.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

02

1. fundur

Stefnumótunarskjal og Aðgerðaráætlun

Stjórn fór yfir Stefnumótun stjórnar safnsins 2015-2019 ásamt Aðgerðaráætlun sem er fylgiskjal með Stefnumótun. Stefnumótun ásamt Aðgerðaráætlun samþykkt.

Bæjarráð Garðabæjar

03

9. (1726). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu stjórnar Hönnunarsafns Íslands að stefnumótun til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.

Í framhaldi af umræðu á síðasta fundi átti formaður menningar- og safnanefndar fund með formanni stjórnar Hönnunarsafnsins og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar um stefnumótunina.
Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, mætti til fundar við menningar- og safnanefnd, gerði grein fyrir vinnu stjórnar Hönnunarsafnsins við stefnumótunina og fór yfir markmið stjórnarinnar til ársins 2019 og helstu þætti greinargerðar með stefnumótuninni.
Menningar- og safnanefnd lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands til ársins 2019.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

13. fundur

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019 var tekin fyrir í bæjarráði 12. janúar sl. og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019 var tekin fyrir í bæjarráði Garðabæjar 12. janúar sl. og vísað til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.
Stefnumótunin var lögð fram til kynningar. Formaður mun funda með formanni stjórnar Hönnunarsafnsins um stefnumótunina. Málið verður áfram til umræðu á næsta fundi.

Bæjarráð Garðabæjar

06

1. (1718). fundur

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

07

3. fundur

Breytingatillögur til lokafrágangs afgreiddar

Stjórn fór yfir síðustu drög að Stefnumótun stjórnar næstu 4 árin. Breytingar samþykktar og ákveðið að ganga frá svo senda megi fyrir bæjarráð Garðabæjar.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

08

2. fundur

Stjórn fór yfir Stefnumótunarskjalið og ræddi breytingar, forstöðumanni falið að ganga frá því svo megi ljúka stefnumótun á næsta fundi stjórnar í desember.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

09

1. fundur

Þann 25. febrúar síðastliðinn vann stjórn að stefnumótun safnsins 2015-2019. Forstöðumaður lagði fram drög að texta.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

10

0. fundur

Stjórnin átti vinnufund. Upphaf formlegrar stefnumótunarvinnu.