1. (1718). fundur
1. (1718). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
12.01.2016
Kl. 08:00 - 08:55
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Sjávargata 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Sjávargötu 18 samkvæmt reyndarteikningum.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markarflöt 9
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Markaflöt 9. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
03
Bréf Úti og Inni um leyfi til að skipuleggja lóð í landi Eyvindarstaða fyrir íbúðarhúsnæði, dags. 21.12.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
04
Bréf SSH varðandi ályktun um Heiðmerkurveg, dags. 21.12.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Kvenfélags Álftaness um tímabundið áfengisleyfi fyrir þorrablót, dags. 08.01.15
Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
06
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar knattspyrnudeildar Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi v/þorrablóts
Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Sigurður Guðmundsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
07
Minnisblað um snjóhreinsun og hálkueyðingu í Garðabæ, dags. 06.01.16.
Lagt fram minnisblað um snjóhreinsun og hálkueyðingu í Garðabæ þar sem lýst er viðbragðsáætlun og helstu verkefnum starfsmanna.
Bæjarráð tekur undir tillögur sem settar eru fram til úrbóta og felur bæjarstjóra að vinna að nánari framgangi þeirra og útfærslu.
Fylgiskjöl
08
Bréf Kvennaráðgjafarinnar um styrk árið 2016, dags. 04.01.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2016.
Fylgiskjöl
09
Drög að samningi um Kvennahlaup ÍSÍ
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að tryggja stuðning við Kvennahlaup ÍSI í formi þjónustu vegna framkvæmdar hlaupsins og með árlegu framlagi árin 2016 ? 2018 að fjárhæð kr. 1.500.000.
Fylgiskjöl
10
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um nýja reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, dags. 05.01.16.
11
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um uppgjör á rekstrargrunni, dags. 17.12.15.
12
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi skipulagsbreytingar, dags. 17.12.15.
13
Bréf UMFÍ varðandi Hreyfiviku 2016, dags. 21.12.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjórar með hvatningu um að senda skilaboð til starfsmanna um þátttöku í Hreyfiviku UMFÍ 2016. Þá vísar bæjarráð bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um húsnæðisbætur (heildarlög)407. mál, dags. 21.12.15.
15
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um húsaleigulög (réttarstaða leigjenda og leigusala) 399. mál., dags. 21.12.15.
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almennar íbúðir (heildarlög), 435 mál., dags. 21.12.15.
17
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. varðandi brunavarnaráætlun, dags. 18.12.15.
18
Bréf varðandi möguleg kaup á húsnæði við Goðatún 34, ódags.
Á fundi bæjarráðs 3. mars 2015 var lagt fram sölutilboð eiganda Goðatúns 34 að fjárhæð kr. 47.000.0000.
Af því tilefni var eftirfarandi bókað.
„Í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp 27. nóvember sl. var Garðabær sýknaður af kröfu húseiganda Goðatúns 34 um greiðslu bóta vegna skemmda á húsnæðinu sem húseigandi taldi að væru tilkomnar vegna framkvæmda á vegum Garðabæjar við götuna Silfurtún.
Bæjarráð samþykkir með vísan til niðurstöðu dóms Hæstaréttar að leggja til við bæjarstjórn að hafna sölutilboði bréfritara.“
Á fundi bæjarstjórnar 5. mars s.á. var samþykkt bæjarráðs staðfest.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við málsaðila.
Fylgiskjöl
19
Bréf Íslenska Gámafélagsins varðandi þjónustu flokkunarstöðva, dags. 15.12.15.
Bæjarstjóri kynnti samstarf við Íslenska Gámafélagið um að fyrirtækið starfræki tvær flokkunarstöðva í bænum til reynslu í tvö ár.
Fylgiskjöl
20
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2015-2019
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
21
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi afnot af Ásgarði vegna samkomuhalds, dags. 08.01.15.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
22
Bréf GÁ og RT varðandi húsnæði við Garðaflöt 14-16, dags. 08.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
23
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi endurskoðun umbótaáætlunar Barnaskóla Hjallastefnunnar, dags. 30.12.15.
24
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar, dags. 16.12.15.
25
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Sjáland, dags. 30.11.15.
26
Tilkynning frá fjármálaráðuneytinu um drög að frumvarpi til laga um opinber innkaup - heildarendurskoðun, dags. 23.12.15.
27
Tilkynning frá fjármálaráðuneytinu um gildistöku laga um opinber fjármál, dags. 21.12.15.
28
Erindi húsfélagsins Smiðsbúð 12 varðandi álagningu fasteignagjalda, dags. 16.10.15.
Bæjarráð getur ekki fallist á erindi bréfritara að leggja eigi fasteignagjöld á geymslurými í húsnæði að Smiðsbúð 12 eins og um íbúðarhúsnæði sé að ræða. Umrætt húsnæði er sannarlega ekki nýtt til íbúðar og fellur því undir annað húsnæði samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4-1995. Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um álagningu gjalda er álagningarhlutfall fasteignaskatts húsnæðis í þeim flokki 1,65%.
María Grétarsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.