Bréf UMF Stjörnunnar varðandi afnot af Ásgarði vegna samkomuhalds, dags. 08.01.15.
Málsnúmer 1509276
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
1. (1718). fundur
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (1705). fundur
Í bréfinu er farið fram á að nýta íþróttahúsið við Ásgarð í fjáröflunarskyni fyrir árshátíð Marels 27. febrúar 2016.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið enda verði tryggt sem best að ekki komi til skerðingar á íþróttastarfi og skólastarfi. Jafnframt skal það tryggt að uppfyllt séu öll skilyrði til skemmtanahalds og að ekki komi til kostnaðar fyrir bæinn vegna málsins.
Þá skulu lagðar fram tryggingar vegna hugsanlegs tjóns á húsnæði og búnaði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.