37. (1705). fundur
37. (1705). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
29.09.2015
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Umsókn um byggingarleyfi - Bæjargata 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss við Bæjargötu 2.
02
Umsókn um byggingarleyfi - Bæjargata 4
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss við Bæjargötu 4.
03
Umsókn um byggingarleyfi - Þrastanes 24
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsi við Þrastanes 24.
04
Bréf forsætisráðuneytis varðandi kynningarfund um nýsamþykkt lög um verndarsvæði í byggð, dags. 25.09.15.
05
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu varðandi skýrslu um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum.
Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar í leikskólanefnd, skólanefnd og fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
06
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar, dags. 21.09.15.
07
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um byggingarsjóð Landspítala, dags 21.09.15.
08
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagskrá og málefni aldraðra, dags. 22.09.15.
09
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2016, dags. 23.09.15.
10
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um þjóðgarð á miðhálendinu, dags. 24.09.15.
11
Bréf frá Alþingi varðandi frumvarp til laga um náttúruvernd o.fl., dags. 24.09.15.
12
Greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala
Lögð fram greinargerð Samtaka um betri spítala ásamt viðhorfskönnunum sem gerðar voru í júlí og ágúst sl.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið bréfritara um að ástæða sé til að endurskoða staðsetningu nýs spítala og felur bæjarstjóra að vekja athygli á kostum landsvæðis við Vífilsstaði í því sambandi.
Fylgiskjöl
13
Bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds Álftanesvegar(eldri), dags. 21.09.15.
Lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða nánar við Vegagerðina og fara fram á úttekt á ástandi vegarins í samræmi við breytta flokkun samkvæmt orðskýringum í 3. gr. vegalaga.
Fylgiskjöl
14
Bréf stjórnar foreldrafélags og foreldráðs leikskólans Kirkjubóls um mönnun á leikskólanum Kirkjubóli. dags. 03.09.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2016 eins og áður hefur verið kynnt bréfritara.
Fylgiskjöl
15
Greinargerð um verkferla við útskrift nemenda úr gunnskóla og inngöngu í framhaldsskóla, dags. 14.09.15.
Lögð fram greinargerð sem unnin er sameiginlega af fræðslu- og menningarsviði, fjölskyldusviði, Álftanesskóla, Garðaskóla, Sjálandsskóla og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í þeim tilgangi að móta skýra verkferla til að undirbúa nemendur sem útskrifast úr 10 bekk grunnskólans undir nám í framhaldsskóla.
Bæjarráð vísar greinargerðinni til skólanefndar og grunnstoða (foreldrafélag grunnskólanna).
Fylgiskjöl
16
Velferð barna í Garðabæ - verklag vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna
Lögð fram samantekt sem unnin er sameiginlega af Menntaklifi og Garðabæ um verklag stofnanna, félagasamtaka og dagforeldra vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna.
Bæjarráð vísar samantektinni til kynningar viðeigandi aðila innan bæjarkerfisins og felur fjölskyldu- og fræðslu- og menningarsviði að fylgja eftir umfjöllun og frekari kynningu um málið.
Fylgiskjöl
17
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi afnot af íþróttahúsinu Ásgarði vegna samkomuhalds, dags. 22.09.15.
Í bréfinu er farið fram á að nýta íþróttahúsið við Ásgarð í fjáröflunarskyni fyrir árshátíð Marels 27. febrúar 2016.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið enda verði tryggt sem best að ekki komi til skerðingar á íþróttastarfi og skólastarfi. Jafnframt skal það tryggt að uppfyllt séu öll skilyrði til skemmtanahalds og að ekki komi til kostnaðar fyrir bæinn vegna málsins.
Þá skulu lagðar fram tryggingar vegna hugsanlegs tjóns á húsnæði og búnaði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.