Beint í efni

Samningur um Sprotasjóðsverkefnið: Kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ

Málsnúmer 1306038

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Leikskólnefnd fagnar verklaginu og innleiðingu þess hjá stofnunum og félagasamtökum í bænum.

Fylgiskjöl

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

16. fundur

Kynning á verklagi vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna.

Skólnefnd fagnar verklaginu og bindur miklar vonir við innleiðingu og útfærslu verkferlanna hjá stofnunum og félagasamtökum í bænum. Rætt um að tengja foreldrasamfélagið inn í verkefnið hugsanlega í gengum Grunnstoð.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

7. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1306038 - Velferð barna í Garðabæ. Lögð er fram og kynnt samantekt sem unnin var sameiginlega af Garðabæ og Menntaklifi um verklag stofnana, félagasamtaka og dagforeldra vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna. Bæjarráð vísaði samantektinni til kynningar innan bæjarkerfisins og fól fjölskyldu- og fræðslu- og menningarsviði að fylgja eftir umfjöllun og frekari kynningu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

04

37. (1705). fundur

Lögð fram samantekt sem unnin er sameiginlega af Menntaklifi og Garðabæ um verklag stofnanna, félagasamtaka og dagforeldra vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna.

Bæjarráð vísar samantektinni til kynningar viðeigandi aðila innan bæjarkerfisins og felur fjölskyldu- og fræðslu- og menningarsviði að fylgja eftir umfjöllun og frekari kynningu um málið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

44. fundur

Lögð fram.

Leikskólanefnd Garðabæjar

06

4. fundur

Þróunarverkefni um velferð barna í Garðabæ

Tillaga að verklagi Garðabæjar vegna vanrækslu, ofbeldis gegn börnum og áhættuhegðun sem unnin hefur verið í þróunarverkefninu Jafnrétti, kynheilbrigði og velferð lögð fram og rædd. Ánægja var meðal nefndarmanna um tillöguna að verklaginu og vonar nefndin að verkefnið fái brautargengi.

Fjölskylduráð Garðabæjar

07

7. fundur

Óskað eftir umsögn

Lögð fram til kynningar drög að verklagi Garðabæjar vegna vanrækslu, ofbeldis gegn börnum og áhættuhegðunar. Á fundi bæjarráðs 14. október sl. var erindi um innleiðingu verkefnisins vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015. Fjölskylduráð mælir með að unnið verði að gerð verklags- og fræðsluáætlunar um ofangreint málefni hjá stofnunum Garðabæjar sem koma að vinnu með börnum og unglingum í bæjarfélaginu.

Bæjarráð Garðabæjar

08

39 (1659). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 og til umfjöllunar í mannréttinda- og forvarnanefnd.

Bæjarráð Garðabæjar

09

50. fundur

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir verkefninu og kom fram að stefnt er að lokaskýrslu í vor.