50. fundur
50. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.12.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1312177
01
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi ályktanir Sveitarstjórnarvettvangs EFTA um endurskoðun evrópskra reglna um úrgangsmál o.fl., dags. 05.12.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1312163
02
Drög að samningi um bakvaktir barnaverndarnefndar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Málsnúmer 1307042
03
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2014
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir lántökuheimildum samkvæmt fjárhagsáætlun 2014$line$$line$Bæjarráð samþykkir að farið verði í skuldabréfaútboð til að fá hagstæðustu kjör sem völ eru á. Leitað verði til Íslandsbanka vegna stækkunar á flokk sem er þegar til GARD 13 1. $line$Til að tryggja samkeppni er lagt til að haldið verði lokað útboð á GARD 13 1 bréfunum sem þar sem öllum helstu fagfjárfestum á landinu verður gefinn kostur á að taka þátt. Með því er tryggt bestu kjör fáist miðað við markaðaaðstæður. $line$Lagt er til að leitað verði til KPMG varðandi faglega ráðgjöf varðandi lántökuna og að fyrirtækinu verði falið að hafa eftirlit með skuldabréfaútboðinu til að tryggja að rétt sé að málum staðið og upplýst verði um boðin sem berast.$line$Niðurstaðan verður síðan lögð fyrir bæjarráð sem mun leggja fyrir bæjarstjórn tillögu um að taka hagstæðasta tilboðinu.
Málsnúmer 1303155
04
Fjárstreymisyfirlit Janúar - október 2013.
Fjármálastjóri sat einnig fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fjárstreymisyfirliti fyrir tímabilið janúar ? október 2013.
Málsnúmer 1312176
05
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs (verndun umhverfis og heilsu, EES-reglur), 215. mál, dags. 09.12.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1312167
06
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um könnun á hagkvæmni þess að draga úr plastpokanotkun, 102. mál, dags. 06.12.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1312184
07
Gjaldskrá og afgreiðslutími skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 2013-2014.
Lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 1311497
08
Bréf Urriðalands og Urriðaholts ehf. ehf varðandi landmótun í vesturhluta Urriðaholts, dags. 14.11.13.
Lagt fram bréf Urriðalands ehf. og Urriðaholts ehf. þar sem farið er fram á leyfi til landmótunar lóða við Hraungötu 19-23, 41-45 og 47-51, Holtsveg 2-6, 8-12, 14-18, 39, 41-43 og 45-47, Hellugötu 31, Víkurgötu 1-9, Bæjargötu 11-19 og Dýjagötu 2-8.$line$$line$Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að veita umbeðið leyfi og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1311365
09
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 06.12.13.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála í viðræðum stjórnar SHS við velferðarráðuneytið um rekstur sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.
Málsnúmer 1306038
10
Stöðuskýrsla um jafnrétti, kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ, nóv. 2013.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir verkefninu og kom fram að stefnt er að lokaskýrslu í vor.
Málsnúmer 1310190
11
Siðareglur kjörinna fulltrúa Garðabæjar.
Bæjarráð vísar tillögu að siðareglum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1211337
12
Bréf umhverfisnefndar varðandi skýrslu um fuglalíf í Garðabæ 2013, dags. 13.12.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1307042
13
Reglur um greiðslur vegna barna á leikskólum sem ekki eru reknir af Garðabæ.
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1307042
14
Tillaga að breytingu á gjaldskrá leikskóla (tímabundin ákvæði).
Bæjarráð vísar tillögu að breytingu á gjaldskrá leikskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1312287
15
Þjónustukönnun - skýrsla, dags. í nóv. 2013..
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar og samanburði við önnur sveitarfélög.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kynna niðurstöðurnar í helstu nefndum bæjarins.
Málsnúmer 1301109
16
Afgreiðslur byggingarfulltrúa Tímabilið 06.12.-13.12.13.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 06.12. ? 13.12.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Dalakur 3, Stórakur 3 og Stórakur 5.