Bréf umhverfisnefndar varðandi skýrslu um fuglalíf í Garðabæ 2013, dags. 13.12.13.
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
35. fundur
Lögð fram skýrsla yfir talningu fugla við Arnarnesvog, Vífilsstaðavatn, Urriðavatn og í Vatnsmýri. 17 talningar fóru fram á tímabilinu febrúar til nóvember 2013. Þessi svæði hafa verið áður talin af þeim skýrsluhöfundum Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarsyni því fæst greinagóður samanburður yfir breytur á svæðunum.
Í lokaorðum höfunda benda þeir á að vissulega séu sveiflur í lífríkinu eins og eðlilegt má telja. Helstu áhyggjuefni skýrsluhöfunda eru: fækkun vaðfugla í Arnarnesvogi og fækkun dugganda á Vífilsstaðavatni og minna fuglalíf á Urriðavatni. Þeir hvetja til áframhaldandi friðlýsinga s.s. Urriðavatns og Vatnamýrar sunnan Vífilsstaða. Jafnframt að verndaráætlun verði gerð fyrir svæðin. Þeir hafa áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og að runnagróður sé að þekja Dýjamýri við Urriðavatn. Höfundar hafa áður bent á að endurheimta skuli mýrina þar. $line$Með því að hlúa að flórgoðanum og útbúa varpstaði fyrir hann á Vífilsstaðavatni, eru líkur á að varppörum þar muni fjölga. Jafnframt þarf að framfylgja hundabanni og lengja það fram yfir varptíma flórgoðans, eins og gert var sl. sumar.$line$$line$Umhverfisnefnd fagnar skýrslunni sem er fróðleg og prýdd fallegum fuglamyndum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
25. fundur
Tillaga um verkáætlun vegna fuglatalninga í Garðabæ og á Álftanesi frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni dags. 6. des. 2012.
<DIV>Umhverfisnefnd samþykkir verkáætlun og verðtilboð í vöktun með fuglatalningum.</DIV>
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
24. fundur
Tillaga að verkáætlun vegna fuglatalninga í Garðabæ 2013, frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni.
<DIV>Umræða um málið og ákvörðun frestað til næsta fundar nefndarinnar.</DIV>