25. fundur
25. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Garðabæ
11.12.2012
Kl. 17:00 - 19:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - Aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Kynnisferð á Álftanes
Umhverfisnefnd hittist þriðjudaginn 11. desember 2012, klukkan 16.50 á Garðatorgi og þaðan var ekið út á Álftanes. Tilefnið var sameining Sveitarfélagsins Álftaness og Garðabæjar sem samþykkt var í atkvæðagreiðslu þann 20. október og tekur gildi um áramót. Nefndin fór til kynningar á umhverfismálum.
Ferðin hófst með skoðunarferð um Sveitarfélagið Álftanes.Snorri Finnlaugsson bæjarstjóri, Guðmundur G. Gunnarsson formaður umhverfis- og skipulagsnefndar og Elías J. Bjarnason varaformaður umhverfis- og skipulagsnefndar tóku á móti nefndinni við afleggjarann að Bessastöðum.A. Ekið var um Álftanes og helstu staðir skoðaðir, Guðmundur, Snorri og Elías kynntu friðlýst svæði og gerðu grein fyrir umhverfis- og skipulagsmálum.B. Kynning á umhverfis- og skipulagsmálum á Álftanesi á bæjarskrifstofu að Bjarnastöðum. Umhverfisnefnd þakkar fulltrúum sveitarstjórnar Álftaness frábærar móttökur og fróðlega leiðsögn um umhverfis- og skipulagsmál Álftaness.
02
Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum
Bæjarráð vísar erindi Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings þann 27. nóv. sl. til umfjöllunar umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.
Nefndin telur verkefnið áhugavert og kjörið samvinnuverkefni milli umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.
03
Vöktun - Rannsókn fugla 2013
Tillaga um verkáætlun vegna fuglatalninga í Garðabæ og á Álftanesi frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni dags. 6. des. 2012.
Umhverfisnefnd samþykkir verkáætlun og verðtilboð í vöktun með fuglatalningum.
05
Náttúru- og umhverfisfræðsla um lækina
Áætlun um verklag og kostnað við útikennslu frá Bjarna Jónssyni frá Fræðaveitunni ehf.
Umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og felur umhverfistjóra að kynna verkefnið fyrir grunnskólunum. Áætlað að útikennsla við lækina geti hafist í maímánuði.
06
Umhverfismál og flokkun sorps
Erindi Helgu Sifjar Guðmundsdóttur dags. 3.12.12 um umhverfisvænan Garðabæ.
Umhverfisnefnd getur upplýst að innleiðing tveggja tunnu kerfis hefjist á nýju ári.
07
Samstarf við sveitarfélög til að bæta hundamenningu
Erindi Freyju Kristinsdóttur formanns Félags ábyrgra hundaeigenda með stefnuskjali FÁH dags.27.11.12
Lagt fram.
08
Skógrækt í lúpínubreiðum
Erindi Skógræktarfélags Íslands dags. 30.11.12. um skógrækt í lúpínubreiðum vísað frá bæjarráði til umhverfisnefndar.
Umhverfisstjóri upplýsti að Skógræktarfélagið hefði tileinkað sér að gróðursetja hærri trjágróður í lúpínubreiður á umsjónasvæðum félagsins.
09
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Niðurstöður mengunarmælinga á mengun í útrásum í Arnarneslæk, dagsetning sýnatöku 28.10.12 frá Heilbrigðiseftirliti.
Nefndin fylgir þessu máli eftir.
10
Skýrsla náttúruverndarnefnda
Skýrsla yfir störf nátttúruverndarnefnda fyrir árið 2012, sem er lögbundin skil til Umhverfisstofnunnar.
Umhverfisstjóri tók saman skýrslu um störf umhverfisnefndar 2012.Lagt fram.
11
Ástandsskýrsla friðlýstra svæða 2012
Drög að ástandsskýrslu friðlýstra svæða í Garðabæ 2012, sem umhverfisstjóri hefur tekið saman.
Skýrslan verður send Umhverfisstofnun.
12
Friðlýsing Búrfells sem náttúruvættis og Búrfellshrauna sem fólkvangs.
Staða málsins kynnt.