Kynnisferð um Álftanes
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
29. fundur
Farið var í rútu um Álftanes undir leiðsagnar Elíasar J. Bjarnasonar.

Elías vakti athygli nefndarmanna á mörgum stöðum og einnig því sem betur mætti fara. Friðlýst svæði skoðuð sérstaklega. Farið var yfir verkefni fyrir sumarstörf unglinga á Álftanesi.

Elíasi þökkuð greinagóð og áhugaverð kynning.

Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
25. fundur
Umhverfisnefnd hittist þriðjudaginn 11. desember 2012, klukkan 16.50 á Garðatorgi og þaðan var ekið út á Álftanes. Tilefnið var sameining Sveitarfélagsins Álftaness og Garðabæjar sem samþykkt var í atkvæðagreiðslu þann 20. október og tekur gildi um áramót. Nefndin fór til kynningar á umhverfismálum.

Ferðin hófst með skoðunarferð um Sveitarfélagið Álftanes.

Snorri Finnlaugsson bæjarstjóri, Guðmundur G. Gunnarsson formaður umhverfis- og skipulagsnefndar og Elías J. Bjarnason varaformaður umhverfis- og skipulagsnefndar tóku á móti nefndinni við afleggjarann að Bessastöðum.

A. Ekið var um Álftanes og helstu staðir skoðaðir, Guðmundur, Snorri og Elías kynntu friðlýst svæði og gerðu grein fyrir umhverfis- og skipulagsmálum.

B. Kynning á umhverfis- og skipulagsmálum á Álftanesi á bæjarskrifstofu að Bjarnastöðum.

Umhverfisnefnd þakkar fulltrúum sveitarstjórnar Álftaness frábærar móttökur og fróðlega leiðsögn um umhverfis- og skipulagsmál Álftaness.