Náttúru- og umhverfisfræðsla um lækina
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
26. fundur
Umhverfisstjóri sagði frá 1. fundi með stjórnendum Hofsstaðaskóla og Flataskóla um undirbúning útikennslu um Arnarneslæk og Hraunsholtslæk, haldinn þann 10.01.2013.
<DIV>Nefndin er ánægð með framvindu verkefnisins, sem Hofsstaðaskóli, Flataskóli og Sjálandsskóli taka þátt í.</DIV>
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
25. fundur
Áætlun um verklag og kostnað við útikennslu frá Bjarna Jónssyni frá Fræðaveitunni ehf.
<DIV>Umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og felur umhverfistjóra að kynna verkefnið fyrir grunnskólunum. Áætlað að útikennsla við lækina geti hafist í maímánuði.</DIV>
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
23. fundur
Erindi Kristrúnar Sigurðardóttur deildarstjóra Hofsstaðaskóla varðandi gerð fræðsluefnis er tengist lífríki Arnarneslækjar, líkt og umhverfisfræðsluverkefnið um Vífilsstaðavatn, dagsett 5. okt. sl.
<DIV>Umhverfisnefnd líst vel á tillöguna og felur umhverfisstjóra að fá áætlun um verkefnið fyrir báða lækina þ.e. Arnarneslæk og Vífilsstaða- og Hraunsholtslæk sem gæti gagnast öllum grunnskólum bæjarins.</DIV>