Beint í efni

26. fundur

15.01.2013
Umhverfisnefnd Garðabæjar

26. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

15.01.2013

Kl. 17:00 - 18:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1112064

01

Hnitsetning fornleifa

Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur kynnti verkefnið um hnitsetningar fornleifa í Garðabæ sem hún hefur verið að vinna að fyrir nefndina. Hún opnaði inná landupplýsingarkerfi bæjarins þar sem fornleifar verða vel sjáanlegar með skýringum.

Ragnheiði þökkuð áhugaverð og greinargóð kynning á hnitsetningum fornleifa í Garðabæ. Um það bil 600 fornleifar eru nú færðar inn í landupplýsingakerfi bæjarins.Nefndarmenn eru mjög ánægðir með að upplýsingar um fornleifarnar skulu vera orðar aðgengilegar.Stefnt er að í framhaldi af þessari vinnu að hnitsetja fornleifar á Álftanesi.

Málsnúmer 1204437

02

Drög að Stöðuskýrslu fyrir vatnasvæði Íslands

Tekin fyrir drög að Stöðuskýrslu fyrir vatnasvæði á Íslandi frá Umhverfisstofnun dags. 7. des. 2012.

Umhverfisstjóri, sem er fulltrúi umhverfisnefndar í vatnasvæðisnefnd 4, gerði grein fyrir skýrslunni.

Málsnúmer 1212149

03

Eftirlit og starfsleyfisútgáfa Umhverfisstofnunar

Tekið fyrir erindi um Evrópska úttekt á eftirliti IMPEL frá Umhverfisstofnun dags.18.12.12.

Lagt fram.

Málsnúmer 1212152

04

Undirbúningur sameiningar Reykjanesfólkvangs og Bláfjallafólkvangs

Erindi SSH um undirbúning að sameiningu Reykjanesfólkvangs og Bláfjallafólkvangs dags. 18.12.12, vísað frá bæjarráði til kynningar í umhverfisnefnd þann 06.12.12.

Umræður um sameininguna. Lagt fram.

Málsnúmer 2011020198

05

Endurskoðun á gildandi vatnsvernd fyrir höfuðborgarsvæðið

Erindi SSH er varðar verklýsingu vegna endurskoðunar á gildandi vatnsvernd fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 1.12.2012. Bæjarráð vísar erindinu þann 04.01.2013 til skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.

Lagt fram.Umhverfisnefnd hefur hug á að fylgjast með framvindu skipulags vatnsverndar yfir höfuðborgarsvæðið.

Málsnúmer 2011020160

06

Náttúru- og umhverfisfræðsla um lækina

Umhverfisstjóri sagði frá 1. fundi með stjórnendum Hofsstaðaskóla og Flataskóla um undirbúning útikennslu um Arnarneslæk og Hraunsholtslæk, haldinn þann 10.01.2013.

Nefndin er ánægð með framvindu verkefnisins, sem Hofsstaðaskóli, Flataskóli og Sjálandsskóli taka þátt í.

Málsnúmer 1212190

07

Sorphirða í Garðabæ 2013

Tveggja tunnu kerfið innleitt á næstu mánuðum.

Umhverfisnefnd fagnar því að verkefnið sé komið til framkvæmda.

Málsnúmer 1206034

08

Strönd og lækir, mengunarmælingar

Fyrirspurn um mengunarmælingar og aðgerðir.

Umhverfisstjóri upplýsir stöðu verkefnisins.

Málsnúmer 1202032

09

Fræðslubæklingur um Gálgahraun.

Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur hefur áhuga á að útbúa fræðslubækling um rannsóknir sínar á Gálgahrauni. Hún hefur leitað til Vegagerðarinnar um að styrkja útgáfu bæklingsins.

Afgreiðslu er frestað til næsta fundar, þegar nánari aðkoma nefndarinnar að verkefninu liggur ljóst fyrir.