23. fundur
23. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
09.10.2012
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - Aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1209118
01
Náttúruverndarlög
Frumvarp til náttúruverndarlaga, erindi dagsett 03.09.12. Erindinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar frá bæjaráði til kynningar 11. sept.

Lagt fram.

Málsnúmer 1210159
02
Umhverfismál og staðardagskrá 21
Unnið að yfirliti málaflokka og verkefna á sviði umhverfismála í Garðabæ.

Nefndin sendir erindið til bæjarráðs.

Málsnúmer 1208528
03
Friðlýsing Búrfells sem náttúrvættis og Búrfellshrauna sem fólkvangs.
Tillögur að friðlýsingu: 1.Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár sem náttúruvætti, 2. Garðahraun, Vífilsstaðahraun og Maríuhellar sem fólkvangar.

Umhverfisnefnd fagnar auglýstum áfanga í friðlýsingum. Nefndin telur brýnt að hefja endurskoðun Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016.

Málsnúmer 1205660
04
Dagur íslenskrar náttúru 2012
Nefndin stóð fyrir velheppnaðri fræðslugöngu þann 16. september á Degi íslenskrar náttúru. Ragnheiður Traustadóttir var leiðsögumaður í göngunni um hraunin. Gengið var eftir berklastíg frá Vífilsstöðum, hellaskoðun í Jónshellum og loks gengið eftir Atvinnubótaveginum.

Umhverfisnefnd fagnar boði Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings um fræðslugöngu um Selgjá, sem mun fara fram 21. okt. n.k.

Málsnúmer 2011020160
05
Arnarneslækurinn tekin í fóstur
Erindi Kristrúnar Sigurðardóttur deildarstjóra Hofsstaðaskóla varðandi gerð fræðsluefnis er tengist lífríki Arnarneslækjar, líkt og umhverfisfræðsluverkefnið um Vífilsstaðavatn, dagsett 5. okt. sl.

Umhverfisnefnd líst vel á tillöguna og felur umhverfisstjóra að fá áætlun um verkefnið fyrir báða lækina þ.e. Arnarneslæk og Vífilsstaða- og Hraunsholtslæk sem gæti gagnast öllum grunnskólum bæjarins.

Málsnúmer 1202032
06
Önnur mál

Landnámshænur í íbúðahverfum.
Umræður um hanagal sem angrar nágranna í íbúðahverfum.

Refir og minkar
Umræður um aðgerðir til að sporna á móti aukningu á refum og minkum í bæjarlandinu.