Beint í efni

Fræðsluganga um Selgjá

Málsnúmer 1205660

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

24. fundur

Fræðsluganga um Selgjá undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings var í boði umhverfisnefndar á Degi íslenskrar náttúru, þann 16. sept. sl.

Fræðslugöngur umhverfisnefndar hafa tekist vel og er auðsýnilegur áhugi fyrir þeim. Næsta fræðsluganga er fyrirhuguð í Vífilsstaðasel með vorinu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

23. fundur

Nefndin stóð fyrir velheppnaðri fræðslugöngu þann 16. september á Degi íslenskrar náttúru. Ragnheiður Traustadóttir var leiðsögumaður í göngunni um hraunin. Gengið var eftir berklastíg frá Vífilsstöðum, hellaskoðun í Jónshellum og loks gengið eftir Atvinnubótaveginum.

Umhverfisnefnd fagnar boði Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings um fræðslugöngu um Selgjá, sem mun fara fram 21. okt. n.k.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

22. fundur

Hvernig ætlar þú að fagna Degi íslenskrar náttúru? $line$Er erindi frá umhverfisráðuneyti, þar sem hvatt er til viðburða í tilefni Dags íslenskrar náttúru dags.13.08.12

Nefndin gengur frá dagskrá á Degi íslenskrar náttúru þann 16. sept. það er fræðslugöngu með leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Lagt verður af stað frá Vífilsstöðum um Berklastíginn, Jónshella og Atvinnubótaveg, um tvær klst.

Dagskráin verður kynnt á vef umhverfisráðuneytis og Garðabæjar, ásamt birtingu í Garðapóstinum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

20. fundur

Bréf Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra dags. 30. maí 2012 um Dag íslenskrar náttúru þann 16. september.

Nefndin hyggst skipuleggja fræðslu- og sögugöngu þann 16. sept. nk.