24. fundur
24. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
19.11.2012
Kl. 17:15 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - Aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Niðurstöður mælinga á mengun yfirborðsvatns og strandar frá Heilbrigðsieftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur fór yfir niðurstöður mengunarmælinga frá Heilbrigðiseftirliti á sýnum tekur þann 6. og 8. nóv. 2012.Hann kynnti þær aðgerðir sem hafa verið í gangi til úrbóta, þau vandamál sem komið hafa upp og áfamhaldandi aðgerðir.Eysteini var þökkuð greinagóð kynning.
02
Urðurnarstaðir fyrir úrgang
Sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2009-2020, vísað frá bæjarráði 16. okt. sl.
Lagt fram.
03
Friðlýsingar - ábendingar og athugasemdir
Umhverfisnefnd fór yfir ábendingar og athugasemdir, sem bárust vegna auglýsingar um friðlýsingu;$line$1. Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluta Selgjár,$line$2. Garðahrauns, Vífilsstaðahrauns og Maríuhella,
Formaður og umhverfisstjóri fóru yfir innsendar ábendingar og athugasemdir.Nefndin vonast eftir að undirritun friðlýsinganna geti orðið innan skamms.
04
Vöktun - fuglatalning
Tillaga að verkáætlun vegna fuglatalninga í Garðabæ 2013, frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni.
Umræða um málið og ákvörðun frestað til næsta fundar nefndarinnar.
05
Yfirlit frjómælinga 2012
Yfirlit yfir frjómælingar í Garðabæ frá Náttúrufræðistofnun Íslands, þann 15.okt.sl.
Lagt fram.
06
Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum
Greinargerð um vinnslu lokaskýrslu með tillögu um útgáfu bókar um fornleifarannsóknir sem fóru fram á Hofsstöðum árin 1994-2000, frá Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi. Meðfylgjandi fjárhagsáætlun, Hofsstaðir 2013-2014.
Verkefnið um útgáfu fornleifarannsókna á Hofsstöðum er áhugavert og leggur umhverfisnefnd til að það verði unnið í samvinnu við menningar- og safnamefnd.
07
Fræðslu- og söguskilti um Maríuhella
Tillaga að fræðsluskilti um Maríuhella frá Árna Tryggvasyni hönnuði og Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi, lögð fram.
Nefndarmönnum lýst vel á skiltið, þar er áhugavert hellakort og sögulegur fróðleikur um Maríuhella.
08
Uppgræðsla í Krýsuvík 2013 - beitarhólfið
Frá Landgræðslu ríkisins um uppgræðlu á Krýsuvík - áfangaskýrsla 2012 og beiðni um áframhaldandi samstarf 2013, dags. 05.11.12.
Nefndin er samþykkt uppgræðslu á beitarhólfi í Krísuvík.
09
Fræðsluganga um Selgjá
Fræðsluganga um Selgjá undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings var í boði umhverfisnefndar á Degi íslenskrar náttúru, þann 16. sept. sl.
Fræðslugöngur umhverfisnefndar hafa tekist vel og er auðsýnilegur áhugi fyrir þeim. Næsta fræðsluganga er fyrirhuguð í Vífilsstaðasel með vorinu.
10
Ársfundur náttúruverndarnefnda sveitarfélaga með Umhverfisstofnun
Umhverfisstjóri sótti ársfund náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar sem haldinn var í Varmahlíð í Skagafirði 13. nóv. sl.
Fjallað var um efni fundarins.
11
Skýrsla náttúruverndarnefnda
Frá Umhverfisstofnun barst eyðublaðsform til útfyllingar þann 19. nóv. 2012 með yfirliti yfir störf nefnda 2012.
Lagt fram.