22. fundur
22. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.08.2012
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - Aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Starfsskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar 2012-2013
Starfsskýrsla Skógræktarfélagsins, undirrituð af Arndísi S. Árnadóttur og Kristrúnu Sigurðardóttur.$line$$line$Móttaka skýrslunnar fer fram í Smalaholti.

Umhverfisnefnd veitti skýrslunni viðtöku í nýjum áningarstað í Smalaholti. Þar sem fulltrúar stjórnar Skógræktarfélagsins buðu uppá heitt kakó.

02
Fjárhagsáætlun til umhverfismála fyrir 2013
Unnið að tillögum til gerðar fjárhagsáætlunar til umhverfismála, sem eru til rannsókna, gerð fræðsluskilta og starfstyrkja til skógræktarfélaganna.

Nefndin sendir tillögur vegna fjárhagsáætlunar 2013 til bæjarráðs, ásamt beiðni Skógræktarfélags Garðabæjar um starfsstyrk.

03
Dagur íslenskrar náttúru 2012
Hvernig ætlar þú að fagna Degi íslenskrar náttúru? $line$Er erindi frá umhverfisráðuneyti, þar sem hvatt er til viðburða í tilefni Dags íslenskrar náttúru dags.13.08.12

Nefndin gengur frá dagskrá á Degi íslenskrar náttúru þann 16. sept. það er fræðslugöngu með leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Lagt verður af stað frá Vífilsstöðum um Berklastíginn, Jónshella og Atvinnubótaveg, um tvær klst.

Dagskráin verður kynnt á vef umhverfisráðuneytis og Garðabæjar, ásamt birtingu í Garðapóstinum.

04
Heiðmörk, nýtt deiliskipulag
Bæjarráð vísar þann 21. ágúst erindi Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 31.07.12 til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhvefisnefnd.

Nefndin kynnti sér deiliskipulagstillöguna á www.skipbygg.is sem vísað var til í bréfinu.

Nefndir gerir athugasemdir við reiðleiðir innan marka Garðabæjar á þemakortum deiliskipulagstillögunar sem eru rangar.

05
Notkun vélknúinna ökutækja við leitir.
Erindi frá Umhverfisstofnunnar dags.23. ágúst 2012 til fjallskilanefnda sveitarfélaga um notkun vélknúinna ökutækja við leitir, ásamt leiðbeiningar bæklingi umhverfisráðuneytisins um akstur utan vega.

Fjallskilanefnd er ekki starfrækt í Garðabæ, því tekur umhverfisnefnd málið fyrir.

06
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Innsend göng frá Heilbrigðiseftirliti þann 27.08.12 um mælingar á mengun í strandsjó og yfirborðsvatni vegna útivistar og verndunar náttúrulegra gæða.

Umhverfisnefnd mun fylgja þessu máli eftir og óskar eftir endurtekningu mælinga innan tveggja mánaða.