20. fundur
20. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.06.2012
Kl. 17:00 - 19:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - Aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Rannsóknarskýrsla um gróður í friðlandi Vífilsstaðavatns
Fulltrúar Náttúrufræðistofnunar Íslands þau Rannveig Thoroddsen líffræðingur og Guðmundur Guðjónsson landfræðingur kynntu rannsókn á gróðurfari friðlands Vífilsstaðavatns og útgáfu skýrslu "Gróður í friðlandi Vífilsstaðavatns".
<P>Nefndin er ánægð með samstarf við Náttúrufræðistofnun og mun leitast við að fara eftir ráðleggingum sérfræðinga hennar.
Skýrslan mun verða birt á <A href="http://www.gardabaer.is/">www.gardabaer.is</A></P>
02
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Frá Heilbrigðiseftirliti vegna gerlamælinga í lækjum og við strendur í Garðabæ. Sýnataka fór fram 22. maí 2012 og endurtekin að ósk umhverfisstjóra 6. júní.
Umhverfisnefnd lítur málið alvarlegum augum. Aðgerðir eru þegar hafnar í samráði við bæjarverkfræðing og óskað er eftir endurtekningu sýna og mælinga eftir mánuð.
03
Stefnumótun stjórnar Sorpu vegna Metan hf.
Erindi Sorpu bs dags. 18.04.12 vísað til nefndarinnar frá bæjarráði 8. maí sl.
Lagt fram.
04
Vatnasvæðisnefnd
Vinnufundur vatnasvæðisnefndar svæðis 4 var haldinn 14. maí sl.
Umhverfisstjóri kynnti það helsta sem kom fram og stöðu verkefnisins.
05
Fræðslu- og upplýsingaskilti
a. Fræðslu- og upplýsingaskilti í friðlandi Vífilsstaðavatns.$line$b. Fræðslu- og söguskilti við Atvinnubótaveg.$line$c. Tillögur að merkingu söguminja og fræðsluganga.
a. Reist hefur verið nýtt fræðslu- og upplýsingaskilti í friðlandi Vífilsstaðavatns. Skilti sem þar var, varð fyrir skemmdum á árinu. Árni Tryggvason er hönnuður skiltisins.b. Fræðslu- og söguskilti við Atvinnubótaveg er í vinnslu. Lögð var fram tillaga Árna Tryggvasonar að hönnun skiltisins og sögutexti frá Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi.c. Lögð fram tillaga að frekari merkingu söguminja og hugmyndir að fræðslugöngum frá Ragnheiði Traustadóttur.
06
Heiðmörk umhirða
Umhirða á Heiðmörk tekin fyrir vegna kvartana.
Nefndin hefur áhyggjur af slæmri umgengni í Garðabæjarhluta Heiðmerkur.Umhverfisnefnd sendir bæjarráði bréf með tillögum um úrbætur.
07
Dagur íslenskrar náttúru 2012
Bréf Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra dags. 30. maí 2012 um Dag íslenskrar náttúru þann 16. september.
Nefndin hyggst skipuleggja fræðslu- og sögugöngu þann 16. sept. nk.
08
Trjágróður á lóðamörkum
Minnisblað frá Smára Guðmundssyni garðyrkjustjóra dags 12.06.12 um stöðu verkefnisins Trjágróður á lóðum.
Rætt um leiðir til að fylgja eftir úrbótum hjá þeim fáu aðilum sem ekki hafa sinnt bréflegum óskum garðyrkjustjóra um að klippa trjágróður á lóðamörkum frá gangstéttum og stígum.
09
Kynningar og önnur mál - Hofsstaðaskóli umhverfismál
Kynningarmyndbönd frá umhverfisverkefnum nemenda Hofsstaðaskóla send nefndinni 24. maí sl.
Nefndarmenn mjög hrifnir af verkefnum nemenda Hofsstaðaskóla, sérstaklega fóstur þeirra á Arnarneslæknum.