Trjágróður á lóðamörkum
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
20. fundur
Minnisblað frá Smára Guðmundssyni garðyrkjustjóra dags 12.06.12 um stöðu verkefnisins Trjágróður á lóðum.
<DIV>Rætt um leiðir til að fylgja eftir úrbótum hjá þeim fáu aðilum sem ekki hafa sinnt bréflegum óskum garðyrkjustjóra um að klippa trjágróður á lóðamörkum frá gangstéttum og stígum.</DIV>
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
18. fundur
Könnun var gerð í febrúar 2012 á trjágróðri á lóðamörkum sérstaklega að trjágróður vaxi ekki óhindrað út yfir gangstéttar og stíga. Smári Guðmundsson garðyrkjustjóri sendi bréf til 114 lóðaeigenda íbúðarhúsa með athugasemdum um að þörf væri á trjáklippingum og ósk um úrbætur. Þess má geta að þar af eru 14 lóðaeigendur sem hafa fengið athugsaemdabréf um vanhirðu þrjú ár í röð. Í Garðapóstinum verður birt grein til garðeigenda með nánari skýringum og vísun á fræðslu um trjáklippingar "Gróður á lóðum" á www.gardabaer.is.
<DIV>Nefndin telur að fylgja beri eftir að þessir 14 aðilar geri ráðstafanir við sínar lóðir.</DIV>
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
18. fundur
Borist hafa kvartanir frá íbúum um slælega umhirðu á trjágróðri á lóðum. Þar sem eigendur trassa klippingar, svo trjágróðurinn hindrar umferð gangandi og hjólandi eftir séttum og stígum.
<DIV>Nefndin telur mikilvægt að fylgja þessum málum vel eftir.</DIV>