18. fundur
18. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
að Lyngási 18
13.03.2012
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - Aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Fræðslu- og upplýsingaskilti í friðlandi Vífilsstaðavatns
Gestur: Árni Tryggvason hönnuður.$line$A. Kynning á tillögu að nýju fræðslu- og upplýsingaskilti.$line$B. Hugmyndir að söguskilti við Atvinnubótaveg.
A. Nefndin er ánægð með tillögu hönnuðar að skiltinu og útliti. Vinna þarf nánar í textanum. Gert í samráði við Umhverfisstofnun vegna þess að skiltið er innan friðlands Vífilsstaðavatns.B. Söguskilti um Atvinnubótaveg, Árni Tryggvason mun sjá um hönnun þess. Framundan er öflun efnis um sögu vegarins.
02
Rannsóknarskýrsla um gróðurfar friðlands Vífilsstaðavatns
Lögð fram gróðurkort, sem er fylgiskjal skýrslunnar.
Nefndin yfirlas kortið með tilliti til örnefna.
03
Trjágróður á lóðamörkum
Könnun var gerð í febrúar 2012 á trjágróðri á lóðamörkum sérstaklega að trjágróður vaxi ekki óhindrað út yfir gangstéttar og stíga. Smári Guðmundsson garðyrkjustjóri sendi bréf til 114 lóðaeigenda íbúðarhúsa með athugasemdum um að þörf væri á trjáklippingum og ósk um úrbætur. Þess má geta að þar af eru 14 lóðaeigendur sem hafa fengið athugsaemdabréf um vanhirðu þrjú ár í röð. Í Garðapóstinum verður birt grein til garðeigenda með nánari skýringum og vísun á fræðslu um trjáklippingar "Gróður á lóðum" á www.gardabaer.is.
Nefndin telur að fylgja beri eftir að þessir 14 aðilar geri ráðstafanir við sínar lóðir.
04
Yfirlit frjómælinga í Garðabæ 2011
Erindi sent frá Náttúrufræðistofnun 02.03.2012.
Nefndin óskar eftir að þessar upplýsingar verði birtar á <A href="http://www.gardabaer.is/">www.gardabaer.is</A>. Nefndin óskar einnig eftir að tengill að gögnum um svifryk á heimasíðu Heilbrigðiseftirliti verði gert aðgengilegt á vef bæjarins.Þessar upplýsingar snerta fjölda fólks.
06
Umhverfisstjóri
Umhverfisstjóri fékk þann 11. mars 2012 réttindi landvarða með námskeiði á vegum Umhverfisstofnunnar.
Nefndin óskar umhverfisstjóra hjartanlega til hamingju með áfangann.
07
Trjágróður á lóðamörkum
Borist hafa kvartanir frá íbúum um slælega umhirðu á trjágróðri á lóðum. Þar sem eigendur trassa klippingar, svo trjágróðurinn hindrar umferð gangandi og hjólandi eftir séttum og stígum.
Nefndin telur mikilvægt að fylgja þessum málum vel eftir.
08
Hundahald í Garðabæ
Útivistarsvæði fyrir hunda á Bala.
Umhverfisnefnd telur mjög brýnt að komið verði upp svæði fyrir lausa hunda á Bala sem fyrst.
09
Hraðakstur í bænum
Hraðakstur eykst verulega á vorin og hefur valdið slysum á börnum.
Rætt um hvernig umhverfisnefnd gæti komið að umferðaröryggismálum barna í bænum.