35. fundur
35. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.12.2013
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1310131
01
Ársfundur náttúruverndarnefnda 2013
Lögð fram fundargerð ársfundar Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2013, frá Umhverfisstofnun.
Greinargóðir fundarpunktar að áliti nefndarinnar.
Málsnúmer 1311587
02
Frumvarp til laga um náttúruvernd (brottfall laganna), 167. mál
Lagt fram til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis frumvarp um brottfall laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, móttekið 25.11.13
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið.
Málsnúmer 1303203
03
Göngustígur Garðahrauni
Tekin fyrir greinargerð um framkvæmd göngu- og hjólaleiðar er liggur vestan Reykjanesbrautar og er nú samfelld leið gegnum Garðabæ milli sveitarfélaganna Hafnarfjarðar og Kópavogs. Þetta er samstarfsverkefni milli Garðabæjar og Vegagerðar ríkisins.$line$Áfangarnir voru þrír sem tengja stíga sem fyrir voru:$line$a. um Garðahraun vestan Reykjanesbrautar,$line$b. um Austurhraun suður að mörkum Hafnarfjarðar,$line$c. um Bæjargil meðfram Arnarneslæk vestan Reykjanesbrautar.$line$
Nefndin lýsti ánægju sinni með þessa nýju viðbót við göngu- og hjólastíga bæjarins og vönduð vinnubrögð gegnum hraunasvæðið.
Málsnúmer 2008030200
04
Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag
Skipulagsnefnd vísaði til umsagnar umhverfisnefndar staðsetningu útilífsmiðstöðvar við sunnanverðan Vatnsás við Grunnavatn syðra. Áður var áætluð staðsetning við Hjalladal í deiliskipulagstillögu að Heiðmörk.
Umhverfisnefnd er hlynnt staðsetningu útilífsmiðstöðvar við sunnanverðan Vatnsás við Grunnavatn syðra, þar sem staðsetning í Hjalladal er ekki ásættanleg vegna vatnsverndarsjónarmiða.
Málsnúmer 1308037
05
Hlið á Álftanesi, breyting deiliskipulags.
Skipulagsnefnd vísar til umsagnar umhverfisnefndar breytingu á deiliskipulagi Hliðs í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu þar.
Umhverfisnefnd setur sig ekki upp á móti uppbyggingu á Hliði, en áréttar samráð við Minjastofnun Íslands því að á Hliði eru sögulegar minjar. Einnig áréttar nefndin samráð við Umhverfisstofnun enda er Hlið friðlýst svæði. Gera þarf fornleifarannsókn áður en leyfi til framkvæmda verði veitt.
Málsnúmer 1311629
06
Kattahald - kanínur og vargfuglar
Lögð fram fundargerð frá fundi SSH þann 27.11.13 vegna samræmingar á reglum um kattahald og viðbrögðum gegn ágangi kanína og sílamáfa. $line$Drög að ályktun fulltrúa umhverfissviða sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um kanínur lögð fram.
Umhverfisstjóri greindi nefndarmönnum frá sjónarmiðum sem rædd voru á fundinum. $line$$line$Varðandi:$line$1. Samræmdar kattasamþykktir sveitarfélagana var talið heppilegra að beina því til heilbrigðiseftirlita svæðanna að þau beittu sér fyrir endurnýjum hjá þeim sveitarfélögum sem ekki hefðu nýlega uppfært samþykktir; að krefjast örmerkinga, skráningar,geldinga fresskatta og heimilda til handsömunar. $line$2. Lausagöngu kanína voru fulltrúar sveitarfélaganna sammála um að ótækt sé að kanínur fjölgi sér á höfuðborgarsvæðinu, sbr. ályktun Náttúrufræðistofnunnar Íslands að "útrýma beri kanínum úr íslenskri náttúru".$line$3. Varðandi sílamáfa voru fundarmenn sammála um að ekki þýddi að einstaka sveitarfélög hröktu sílamáfa frá sér, því þeir setja sig niður þá á öðrum svæðum. Ekki var fallist á átak í eyðingu sílamáfa.
Málsnúmer 1311628
07
Sjálfbær sveitarfélög - ráðstefna
Ráðstefna á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga var haldin þann 7. nóvember sl.
Umhverfisstjóri sat ráðstefnuna.
Málsnúmer 1311627
08
Umhverfisþing VIII.
Þann 8. nóvember var haldið Umhverfisþing 2013 í Hörpu.
Umhverfisstjóri sótti þingið.
Málsnúmer 1110227
09
Vatnasvæðisnefnd 4
Stöðuskýrsla um vatnasvæði Íslands, sem er bráðabirgðayfirlit um mikilvæg atriði í vatnaáætlun, fyrsta skrefið í gerð vatnaáætlunar, frá Umhverfisstofnun 20.10.13 ásamt skýringarkorti frá Orkustofnun af Reykjanesi. Nánari upplýsingar er að leita á www.vatn.is$line$
Þetta er viðamikið verkefni en umhverfisstjóri er í vatnasvæðisnefnd 4 sem fulltrúi umhverfisnefndar Garðabæjar.
Málsnúmer 1211337
10
Vöktun - Rannsókn fugla 2013
Lögð fram skýrsla yfir talningu fugla við Arnarnesvog, Vífilsstaðavatn, Urriðavatn og í Vatnsmýri. 17 talningar fóru fram á tímabilinu febrúar til nóvember 2013. Þessi svæði hafa verið áður talin af þeim skýrsluhöfundum Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarsyni því fæst greinagóður samanburður yfir breytur á svæðunum.
Í lokaorðum höfunda benda þeir á að vissulega séu sveiflur í lífríkinu eins og eðlilegt má telja. Helstu áhyggjuefni skýrsluhöfunda eru: fækkun vaðfugla í Arnarnesvogi og fækkun dugganda á Vífilsstaðavatni og minna fuglalíf á Urriðavatni. Þeir hvetja til áframhaldandi friðlýsinga s.s. Urriðavatns og Vatnamýrar sunnan Vífilsstaða. Jafnframt að verndaráætlun verði gerð fyrir svæðin. Þeir hafa áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og að runnagróður sé að þekja Dýjamýri við Urriðavatn. Höfundar hafa áður bent á að endurheimta skuli mýrina þar. $line$Með því að hlúa að flórgoðanum og útbúa varpstaði fyrir hann á Vífilsstaðavatni, eru líkur á að varppörum þar muni fjölga. Jafnframt þarf að framfylgja hundabanni og lengja það fram yfir varptíma flórgoðans, eins og gert var sl. sumar.$line$$line$Umhverfisnefnd fagnar skýrslunni sem er fróðleg og prýdd fallegum fuglamyndum.
Málsnúmer 1212190
11
Sorphirða í Garðabæ 2013
Formaður spurði um innleiðingu tveggja tunnu kerfis þ.e. pappírstunna í Garðabæ.
Umhverfisstjóri upplýsti nefndarmenn um verkefnið sem hófst með samþykkt bæjarráðs 15.01.13. Þá hófst undirbúningur gagna og kynning til íbúa. Innleiðingu lauk í september.