Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlið á Álftanesi.

Málsnúmer 1308037

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

2. (1719). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlið á Álftanesi verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Löðg fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs á Álftanesi að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir hafa borist. Umsögn Umhverfisstofnunar lögð fram. Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði því ákvæði við skilmála að leyfi þarf að fást hjá Umhverfisstofnun ef að fara á með ökutæki vegna framkvæmda inn á hið friðlýsta svæði.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindri breytingu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

15. (779). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

15. (779). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

06

39. (1707). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

9. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hliðs verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

08

20. (1688). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hliðs verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi. Skipulagsstjóri greindi frá fundi með Umhverfisstofnun sem hefur lýst yfir áhyggjum af hugsanlegum áhrifum deiliskipulagsbreytingar á umliggjandi friðland. Á þeim fundi var farið nánar ofan í ákvæði tillögunnar og árhrifin á umhverfið og mikilvægi þess að Umhverfisstofnun og Garðabær séu samstíga í málinu.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar og leggur til að haldinn verði fundur með íbúum þar sem innihald tillögunnar verði kynnt og rædd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi. Lagðar fram umsagnir Minjastofnunar dags 19.febrúar 2015 og Umhverfisstofnunar dags 11.mars 2015. Lagt fram erindi Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings dags 27.febrúar 2015 þar sem fram kemur að hún hafi könnunarskurð í gegnum fyrirhugaðan byggingarreit skv deiliskipulagstillögu. Engar fornleifar hafa komið þar í ljós.$line$Umhverfisstofnun telur að áætlanir um gistirými sem líkjist gámaeiningum falli ekki að ásýnd og staðaranda svæðisins.$line$Skipulagsnefnd leggur áherslu á að í útfærslu tillögunnar verði komið til móts við umsögn umhverfisstofnunar.

Bæjarráð Garðabæjar

11

4 (1672). fundur

Lagt fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

12

9. fundur

Guðni Pálsson arkitekt kynnti tillögu að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi sem 19. fundur skipulagsnefndar vísaði til umsagnar umhverfisnefndar.

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hliðs, en óskar eftir að sett verði skilyrði um að ekkert rask verði utan lóðar við framkvæmdirnar.$line$$line$

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

19. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi sem unnin er að á vegum Garðabæjar. Gert er ráð fyrir byggingarreitum umhverfis íbúðarhús undir byggingar ætlaðar ferðaþjónustu.$line$Tillögunni vísað til umsagnar umhverfisnefndar og umhverfisstofnunar þar sem að Hlið er friðlýst svæði og Minjastofnunar vegna fornleifa.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

7. fundur

Guðni Pálsson skipulgasráðgjafi kynnti tillögur að breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi sem gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir smáhýsi í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu. Málinu vísað til frekari úrvinnslu tækni-og umhverfissviðs.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

15

35. fundur

Skipulagsnefnd vísar til umsagnar umhverfisnefndar breytingu á deiliskipulagi Hliðs í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu þar.

Umhverfisnefnd setur sig ekki upp á móti uppbyggingu á Hliði, en áréttar samráð við Minjastofnun Íslands því að á Hliði eru sögulegar minjar. Einnig áréttar nefndin samráð við Umhverfisstofnun enda er Hlið friðlýst svæði. Gera þarf fornleifarannsókn áður en leyfi til framkvæmda verði veitt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

17. fundur

Skipulagsstjóri kynnti hugmyndir að breytingum á deiliskipulagi Hliðs í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu að Hliði. Hugmyndum vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og til umsagnar umhverfisnefndar. Athuga þarf stöðu fornleifaskráningar innan deiliskipulagssvæðisins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

11. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir veitingu byggingarleyfis vegna framkvæmda breytinga á byggingum sem fyrir eru. Áfram er unnið að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu að Hliði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

10. fundur

Skipulagsstjóri greinir frá uppbyggingaráformum að Hliði á sviði ferðaþjónustu.  Ljóst að ekki verði farið í uppbyggingu nema að skipulagsmál á aðalskipulag-og deiliskipulagsstigi og markmið friðlýsingar fólkvangsins verði tekin til athugunar.