Beint í efni

20. (1688). fundur

26.05.2015
Bæjarráð Garðabæjar

20. (1688). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

26.05.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1412147

01

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Arnarnesveg, dags. 22.5.2015.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir þeim þáttum framkvæmda við lagningu Arnarnesvegar, milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar, sem eru innan bæjarmarka Garðabæjar. Um er að ræða framkvæmdir við hluta hringtorgs og lagningu stígs næst Reykjanesbrautinni.$line$$line$Framkvæmdin í heild er matskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og fyrir liggur úrskurður Skipulagsstofnunar, dags. 04.07.2003. $line$$line$Framkvæmdin telst þegar hafin með byggingu hringtorgs við Þorrasali í Kópavogi sem telst hluti heildarframkvæmdarinnar.$line$$line$Sameiginlegt deiliskipulag Kópavogsbæjar og Garðabæjar fyrir Arnarnesveg frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 26. febrúar 2009.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1412209

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fjögurra ára þróunaráætlun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, dags 22.5.2015.

Bæjarráð vísar tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins að þróunaráætlun 2015 - 2018 (fyrri hluti), sem samþykkt var á fundi nefndarinnar 17. apríl 2015, til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1501085

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Gilsbúðar 9, dags 22.5.2015.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi Bæjargils varðandi lóðina við Gilsbúð 9 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda komu ekki fram neinar athugasemdir á kynningartímabili sem var frá 7. apríl - 19. maí 2015.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1308037

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi, dags 22.5.2015.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hliðs verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1310283

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Strikið 1-3, breyting á deiliskipulagi, dags 22.5.2015.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 verði auglýst að nýju samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504287

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Unnargrund, breyting á dsk Ása og Grunda, dags. 22.5.2015.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna byggðar eldri borgara við Unnargrund verði auglýst til kynningar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1302504

07

Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk - samningsskilmálar

Lögð fram og kynnt drög að samningsskilmálum vegna viðræðna við aðila um samstarf um byggingu og rekstur sex íbúða fyrir fatlað fólk.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við Sinnum ehf., Þroskahjálp og Ás styrktarfélag um samstarf á grundvelli fyrirliggjandi draga.

Málsnúmer 1502447

08

Bréf Stjörnunnar varðandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Ásgarði dags. 18.5.2015.

Málsnúmer 1502342

09

Bréf SSH varðandi ferðaþjónustu fatlaðs fólks - innri endurskoðun, dags. 18.05.2015.

Lagt fram bréf SSH ásamt skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um aðdraganda, innleiðingu og framkvæmd breytinga á sameiginlegri ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505191

10

Áfangaskýrsla framkvæmdaráðs ferðaþjónustu fatlaðs fólks, dags 7.5.2015.

Lögð fram áfangaskýrsla framkvæmdaráðs ferðaþjónustu fatlaðs fólks, en ráðið var skipað á eigendafundi Strætó bs., 6. mars 2015 sl. til að bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

Málsnúmer 1505187

11

Sölutilboð eigenda íbúðarhússins Hofsstaðir, dags 20.5.2015.

Bæjarráð hafnar sölutilboði að fjárhæð kr. 75.000.000 í húsið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505179

12

Bréf Skólastjórafélags Reykjaness varðandi kjaramál skólastjórnenda, dags. 7.5.2015.

Málsnúmer 1505133

13

Bréf SSH varðandi tillögu um samræmingu á gjaldskrá vegna stöðubrota, dags 17.5.2015.

Málsnúmer 1501137

14

Skerðing á sumarlaunum tónlistarskólakennara vegna verkfalls

Lögð fram tilkynning frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga um skerðingu á sumarhluta launa tónlistarkennara vegna verkfalls haustið 2014. $line$$line$Bæjarráð samþykkir skerðingu sumarhluta launa tónlistarkennara á þann hátt sem lagt er til samkvæmt ofangreindri tilkynningu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505160

15

Bréf skólastjóra tónlistarskólans varðandi sumarlaun nemenda Tónlistarskóla Garðabæjar 2015, dags 19.5.2015.

Bæjarráð samþykkir tillögu skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2015.$line$$line$Finnur Marteinn Sigurðsson, kt. 250893-2139, gítar nemandi.$line$Ólafur Hákon Sigurðsson, kt. 070298-2529, saxafón nemandi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502222

16

Sumarstörf 2015, staða mála.

Á fund bæjarráðs kom Vilhjálmur K. Haraldsson, mannauðsstjóri, og gerði nánari grein fyrir minnisblað varðandi umsóknir um sumarstörf.$line$$line$Í umsóknarfresti sóttu alls 225 ungmenni um sumarstörf hjá Garðabæ og hefur þeim öllum verið boðin vinna hjá Garðabæ.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að bjóða yngstu aldurhópunum á biðlista vinnu við umhverfisverkefni og felur bæjarstjóra nánari útfærslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505157

17

Minnisblað félagsmálastjóra varðandi tímagjald í NPA, dags 19.5.2015.

Bæjarráð samþykkir hækkun á tímagjaldi í NPA þjónustu við fatlað fólk úr kr. 2.943. í kr. 3.090 til að gilda frá 1. júní 2015.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505158

18

Tilnefning í samráðshóp um vatnsvernd og vatnsnýtingu á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð samþykir að tilnefna Eystein Haraldsson, bæjarverkfræðing sem fulltrúa Garðabæjar í samráðshóp um vatnsvernd og vatnsnýtingu á höfuðborgarsvæðinu.

Fylgiskjöl