Beint í efni

Minnisblað íþróttafulltrúa um notkun á fjölnota íþróttahúsi, dags 18.05.15.

Málsnúmer 1502447

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

22. (1690). fundur

Lagt fram og kynnt minnisblað íþróttafulltrúa um notkun á fjölnota íþróttahúsi.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

10. fundur

Áhugahópur innan knattspyrnudeildar Stjörnunnar kynnir hugmyndir sýnar og sjónarmið.

Fulltrúar áhugahóps innan knattspyrnudeildar Stjörnunnar og málsvarar aðalstjórnar Stjörnunnar um byggingu fjölnota íþróttahúss á Ásgarðssvæðinu kynnti hugmyndir sínar og sjónarmið. Lagði hópurinn áherslu á að byggt yrði á Ásgarðssvæðinu fjölnota íþróttahús þó lofthæð fullnægði ekki kröfum keppnishúss. Hópurinn gerði grein fyrir þeirri skoðun sinni að stórt hús myndi fullnægja þörfum iðkenda íþrótta og almennrar hreyfingar best og að engar málamiðlanir um að byggja minna kæmu til greina, slíkt þjónaði ekki þeirri þörf sem húsið ætti að mæta.$line$Umræða um málið fór fram. Áfram verður unnið að málinu.

Bæjarráð Garðabæjar

03

20. (1688). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

19. (1687). fundur

Lagðir fram.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Til fundarins mættu Baldvin Björn Haraldsson, Halldór Ragnar Emilsson, Helgi Hrannar Jónsson, Kristinn Ingi Lárusson og Valgeir Sigurðsson sem hafa lagt fram athugasemdir við staðarvalsskýrslu vegna fjölnota íþróttahúss. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum sínum en skoðun þeirra er eindregin sú að stórt fjölnotahús verði staðsett á Ásgarðsvæðinu og að hafist verði handa sem fyrst við undirbúning þeirrar framkvæmdar. Málinu vísað til frekari úrvinnslu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

06

8. fundur

Umræður urðu um staðsetningu fjölnota íþróttahúss sem til stendur að byggja í Garðabæ.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

3. fundur

Lögð fram greinargerð Árna Ólafssonar arkitekts um staðsetningarkosti fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Þau sjónarmið sem fram komu á fjölsóttum kyningarfundi í safnaðarheimili Vídalínskirkju þann 18.mars rædd.

Bæjarráð Garðabæjar

08

10. (1678). fundur

Lagt fram.

Bæjarráð Garðabæjar

09

9. (1677). fundur

Bæjarráð vísar greinargerð um staðsetningu fjölnota íþróttahúss til íþrótta- og tómstundaráðs og skipulagsnefndar og felur bæjarstjóra í samráði við formenn viðkomandi nefnda að boða til íbúafundar til kynningar á málinu.