Beint í efni

22. (1690). fundur

09.06.2015
Bæjarráð Garðabæjar

22. (1690). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

09.06.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1502447

01

Minnisblað íþróttafulltrúa um notkun á fjölnota íþróttahúsi, dags 18.05.15.

Lagt fram og kynnt minnisblað íþróttafulltrúa um notkun á fjölnota íþróttahúsi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505218

02

Drög að samningi um samstarf varðandi gestakort í sundlaugar

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag um þátttöku sundlauga Garðabæjar í gestakorti Reykjavíkur og markaðsátakinu ´Reykjavík Loves´ - Geothermal pools. Samkvæmt samkomulaginu fá handhafar Gestakorts Reykjavíkur 50% afslátt af gjaldi fullorðinna.

Málsnúmer 1409324

03

Yfirlit málaflokka fyrir tímabilið janúar - apríl 2015

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar - apríl 2015.$line$$line$Fram kom hjá fjármálastjóra að kostnaður við fjóra málaflokka væri umfram viðmiðanir fyrir fjóra fyrstu mánuði ársins. Um er að ræða kostnað við félagsþjónustu, æskulýðs-og íþróttamál, umferðar og samgöngumál og hjúkrunarheimilið Ísafold.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506001

04

Tilkynning frá Skipulagsstofnun um gildistöku lagaákvæða varðandi ákvarðanir sveitarstjórna um matsskyldu framkvæmda, dags. 29.05.15.

Lögð fram og kynnt tilkynning Skipulagsstofnunar um að þann 1. júní sl. tók gildi ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2006 , sbr. 6. gr. laga sem kveður á um hlutverk sveitarstjórna við að taka ákvarðanir um matskyldu framkvæmda í C-flokki í 1. viðauka laganna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506064

05

Ársreikningur 19. júní-sjóðs 2014

Lagður fram ársreikningur 19. júní sjóðs fyrir árið 2014.$line$$line$Í ársreikningnum kemur fram að tekjur ársins námu kr. 503.575 og námu styrkveitingar kr. 150.000. Samkvæmt efnahagsreikningi kemur fram að bundið eigið fé í árslok nemur kr. 21.698.578 og frjálst eigið fé, sem heimilt er að ráðstafa til styrkja, var í árslok 2014 kr. 301.192.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505221

06

Bréf Ingu Margrétar Róbertsdóttur varðandi þátttöku í kostnaði við skjólgirðingu við Hólmatún 3a, dags 05.06.15.

Bæjarráð hafnar erindi bréfritara um þátttöku í kostnaði við uppsetningu girðingar enda verður ekki séð að bærinn hafi skyldur eða hagsmuni að aðkoma að málinu.$line$$line$Bæjarráð vísar erindinu hvað aðra þætti varðar til afgreiðslu tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl