Beint í efni

Drög að samningi um samstarf varðandi gestakort í sundlaugar

Málsnúmer 1505218

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

22. (1690). fundur

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag um þátttöku sundlauga Garðabæjar í gestakorti Reykjavíkur og markaðsátakinu ´Reykjavík Loves´ - Geothermal pools. Samkvæmt samkomulaginu fá handhafar Gestakorts Reykjavíkur 50% afslátt af gjaldi fullorðinna.

Bæjarráð Garðabæjar

02

21 (1689). fundur

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

10. fundur

Kynning á drögum að samkomulagi um þátttöku sundlauga Garðabæjar í Gestakorti Reykjavíkur.

ÍTG leggur til að Garðabær gerist aðili að Gestakorti Reykjavíkur sem er hluti af markaðssetningu höfuðborgarsvæðisins til erlendra gesta. Slíkt samræmist hugmyndum um að kynna sundlaugarnar og söfn Garðabæjar betur.