21 (1689). fundur
21 (1689). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
02.06.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1401052
01
Kynning á hugmyndum um fluglest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.
Á fund bæjarráðs mættu Runólfur Ágústsson og Björn Þór Guðmundsson og kynntu hugmyndir um framkvæmdir og fjármögnun verkefnis við fluglest milli Keflavíkur og Reykjavíkur.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa kynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar$line$$line$Lagt fram erindi Leó S. Ágústssonar, dags. 15.05.15 varðandi hugleiðingar um samgöngur til Keflavíkur í tengslum við flugfarþega.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505218
02
Drög að samningi um samstarf varðandi gestakort í sundlaugar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Málsnúmer 1505261
03
Reglur um útleigu á veislusal Ísafoldar.
Bæjarráð samþykkir reglur um útleigu á veislusal Ísafoldar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505275
04
Tillaga Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu, dags 28.05.2015.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillöguna og samþykkir að vísa henni til umfjöllunar skólanefndar og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505278
05
Útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla - kynning
Bæjarstjóri gerði grein fyrir útboði skólamálsverða í Sjálandsskóla sem hefur verið auglýst á vef Garðabæjar.
Málsnúmer 1505282
06
Bréf um styrk vegna verkefnisins: "Töframáttur tónlistar", dags. 27. maí 2015.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar og afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505203
07
Drög að samningi um kaup á húsnæði fyrir safnaðarheimili Bessastaðasóknar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1505280
08
Minnisblað mannauðsstjóra varðandi hátíðarhöld 19. júní n.k. í tilefni af hundrað ára kosningarrétti íslenskra kvenna.
Bæjarráð tekur jákvætt í að starfsmenn Garðabæjar fá frí frá störfum sínum 19. júní n.k. eins og kostur er til að þeir geti tekið þátt í hátíðarhöldum sem áformuð eru þann dag í tilefni af hundrað ára afmæli kosningarréttar íslenskra kvenna.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra nánari útfærslu og afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1505226
09
Bréf Varasjóðs húsnæðismála um lok verkefnis varðandi framlög í tenglsum við sölu félagslegra íbúða, dags. 21.05.15.
Málsnúmer 1506010
10
Samþykkt stjórnar SSH vegna kjarasamninga grunnskóla.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samþykkt á fundi stjórnar SSH frá 1. júní sl. vegna kjarasamninga grunnskólakennara en í samþykktinni eru áréttaðar áherslur stjórnarinnar til skólastjórnenda og kennara um grundvallaratriði varðandi vinnutímaskipulag á næsta skólaári.$line$$line$Bæjarráð tekur undir áherslur stjórnar SSH og felur bæjarstjóra að tryggja að þær verði hafðar að leiðarljósi í vinnu skólastjórnenda og kennara í Garðabæ við innleiðingu á vinnutímaskipulagi nýs kjarasamnings með það að markmiði að bæta en frekar gott skólastarf í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1410364
11
Erindi lóðarhafa Hrauntungu við Álftanesveg um gerð deiliskipulags fyrir lóðina, 27.10.14.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við lóðahafa en bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjóra á fundi í nóvember sl. Jafnframt sagði bæjarstjóri frá samtali við fyrrum lóðarhafa og hugmyndum hans um landnotkun lóðarinnar til framtíðar.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags.