Beint í efni

Uppbygging byggðar á lóð Hrauntungu við Álftanesveg

Málsnúmer 1410364

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Lagt fram erindi lóðarhafa um uppbyggingu á landi Hrauntungu. Gildandi deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir því að byggt verði á svæðinu og var við þá ákvörðun m.a. verið að taka tillit til vilja fyrri lóðarhafa sem hafði lagt mikla eljusemi í ræktun landsins þannig að óbyggt er það til yndis og ánægju komandi kynslóða. Þó að Garðahraunshverfið sé skilgreint í aðalskipulagi sem íbúðarbyggð þá eru óbyggð svæði inni í byggðinni mikilvægur þáttur í gæðum byggðarinnar. Skipulagsnefnd mælir með því að svæðið verði óbyggt að svo stöddu að undanskildu því íbúðarhúsi sem þar stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

Fulltrúar lóðarhafa Dalsness ehf komu á fund nefndar og greindu frá hugmyndum sínum um breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar.
Vísað til úrvinnslu í tengslum við gerð aðalskipulags.

Bæjarráð Garðabæjar

03

21 (1689). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við lóðahafa en bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjóra á fundi í nóvember sl. Jafnframt sagði bæjarstjóri frá samtali við fyrrum lóðarhafa og hugmyndum hans um landnotkun lóðarinnar til framtíðar.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

42. fundur

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.