12. fundur
12. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.09.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Uppbygging byggðar á lóð Hrauntungu við Álftanesveg
Fulltrúar lóðarhafa Dalsness ehf komu á fund nefndar og greindu frá hugmyndum sínum um breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar.
Vísað til úrvinnslu í tengslum við gerð aðalskipulags.
02
Unnargrund 2-10, br á dsk Ása og Grunda.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Unnargrund 2-10 að lokinni kynningu. Lóðirnar Unnargrund 2-10 verða sameinaðar í eina lóð Unnargrund 2 og lóðarmörk breytast þannig að bílastæði framan við húsin verða innan lóðar. Á lóðinni verði heimilt að byggja hús með 6-7 íbúðum í stað 5 ætluðum hreyfihömluðum ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk
Tillagan var í kynningu frá 15. maí til 26. júní 2015.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
03
Hraungata 13 - deiliskipulags breyting.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 6 í 8. Bílastæðum fjölgar á lóð og í bílageymslu.
Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
04
Unnargrund, breyting á dsk Ása og Grunda, byggingarmagn.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarmagn 7 raðhúsa aukist úr 130 m2 í 150 m2 til jafns við önnur raðhús.
Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
05
Garðatorg 6, breyting á deiliskipulagi efra svæðis miðbæjar
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, efra svæðis sem nær til lóðarinnar Garðatorg 6.
Tillagan gerir ráð fyrir því að á efri hæðum hússins sem er 3 hæðir með kjallara verði einnig leyfilegt að hafa íbúðir ásamt skrifstofurýmum.
Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
06
Holtsvegur 51, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 51 að lokinni kynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 16 í 17. Bílastæðum fjölgar á lóð og í bílageymslu.
Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
07
Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag
Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga.
Halda skal kynningarfund á meðan forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ennfremur til umsagnar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar.
08
AÐALSKIPULAG GBR 2004-2016 BREYTING HEIÐMÖRK
Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar í tengslum við tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30 gr.Skipulagslaga.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ennfremur til umsagnar umhverfisnefndar.
09
Sunnuflöt 25, breyting á dsk Flata
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata sem nær til lóðarinnar Sunnuflöt 25 að lokinni grenndarkynningu. Breytingartillagan nær til lóðarinnar Sunnuflöt 25.
Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingareitur stækkar til suðurs sem nemur 36 m2 (4x9m) og að innan stækkunar verði heimilt að fullnýta reitinn í kjallara en á 13 m2 á 1. hæð.
Engar athugasemdir voru gerðar við tillöguna.
Í samræmi við 2.mgr.43.gr. er tillagan því samþykkt.
10
Umsókn um byggingarleyfi - Espilundur 11
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir garðhýsi að Espilundi 11 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfið.
11
Krókamýri 62 og 64, tillaga að breytingum. Fyrirspurn
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingum á parhúsinu að Krókamýri 62-64 lokinni grenndarkynningu samræmi við 44.gr. Skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfið.