Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsvegur 51.

Málsnúmer 1504114

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (1706). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 51, sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 16 í 17, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 51 að lokinni kynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 16 í 17. Bílastæðum fjölgar á lóð og í bílageymslu.
Tillagan var í kynningu frá 17. júlí til 28. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1694). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 51. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum fjölgi um eina eða úr 16 í 17 og að gerðar verði útlitsbreytingar á húsinu ásamt fjölgun bílastæða og bílgeymsla.

Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.
Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til fjölbýlishúsalóðarinnar Holtsvegur 51 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Tillagan gerir ráð fyrir því að íbúðum fjölgi um eina, úr 16 í 17 íbúðir. Í stað 4-5 hæða byggingar þar sem fremri hluti byggingar var fjórar hæðir en aftari hluti 5 hæðir verður byggingin 5 hæðir þar sem fremri hluti 5. hæðar er inndregin að hluta. Bílastæðum á lóð fjölgar úr 32 stæðum í 34 stæði. Bílageymslum á lóð fjölgar úr fjórum í fimm. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram tillaga um breytingar á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 51. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um tillöguna. Skipulagsnefnd vísar málinu aftur til hönnuðar og lóðarhafa og mælist til þess að þau atriði sem teljast óheppileg í umsögn deiliskipulagshöfundar verði lagfærð.